Document Actions

Að flytja frá Danmörku til útlanda

Eftirfarandi er það mikilvægasta sem hafa ber í huga þegar áformað er að flytja frá Danmörku til annars norræns ríkis.

Flyttlådor
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Tilkynna skal flutning til þjóðskrár

Einstaklingur sem flytur til útlanda skal, áður en flutt er, skrá flutning til skrifstofu þjóðskrár í því sveitarfélagi sem hann býr. Allir sem flytja til útlanda eiga að vera skráðir sem brottfluttir í þjóðskrá.

Tilkynna skal flutning til þjóðskrár í síðasta lagi fimm dögum eftir að flutt er. Ef ekki er tilkynnt um flutning, getur viðkomandi átt von á að fá sekt.

Dvöl í styttri tíma en 6 mánuði

Ef einstaklingur ætlar ekki að dvelja lengur en sex mánuði erlendis, er hægt að óska eftir að vera skráður áfram með lögheimili í Danmörku í þjóðskrá.

Það felur þó yfirleitt í sér að viðkomandi hafi fullan nýtingarrétt á danska heimili sínu allan tímann. Það á ekki við ef íbúðin er áframleigð, lánuð eða leigð út.

Ef viðkomandi er ekki með fullan nýtingarrétt á íbúðinni, getur sveitarfélagið samt sem áður metið hvort viðkomandi getur haldið lögheimili sínu í Danmörku og verið áfram skráður með búsetu þar.

Heima um helgar og í fríum

Einstaklingur sem dvelur lengur en sex mánuði í útlöndum vegna starfs síns, en er heima í Danmörku flestar helgar, á frídögum og í fríum, á einnig rétt á því að vera skráður áfram með lögheimili í Danmörku.

Sama á við um maka/sambýling og börn hafi þau fylgt viðkomandi til útlanda.

Flutningur til annars norræns ríkis

Þegar flutt er frá Danmörku til Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Íslands eða Færeyja, skal tilkynna flutning til skrifstofu þjóðskrár í búsetusveitarfélagi áður en flutt er.

Einnig skal tilkynna flutning til annars norræns lands til skrifstofu þjóðskrár þess sveitarfélags sem flutt er til, áður en frestur rennur út samkvæmt reglum landsins sem flutt er til.

Hafa skal meðferðis persónuskilríki, þar með talið vottorð um ríkisborgararétt (vegabréf) auk þess sem gefa skal upp kennitölu og heimilisfang sem flutt er frá í Danmörku.

Skrifstofa þjóðskrár í sveitarfélagi sem flutt er frá í Danmörku getur ekki skráð einstakling sem brottfluttan úr sveitarfélaginu fyrr en hún fær tilkynningu um skráningu frá skrifstofu þjóðskrár í sveitarfélaginu sem flutt er til.

Þegar flutt er milli Norðurlandanna, gildir norrænn þjóðaskrársamningur, sem gerður hefur verið milli norrænu ríkjanna. Samningurinn felur í sér að einstaklingur skuli einungis vera skráður í þjóðskrá í einu norrænu ríkjanna.

Nánar um flutninga til annars norræns ríkis á vefsíðu þjóðskrár Det Centrale Personregisters netsted.

Tilkynnið flutning til Post Danmark

Hægt er að tilkynna flutning til Post Danmark með því að panta eða sækja flutningsmöppu hjá Post Danmark eða í bönkum. Ekki er hægt að tilkynna flutning til útlanda rafrænt í gegnum e-Pósthúsið. Póstur er áframsendur í hálft ár.

Hægt er að fá flutningsmöppu hjá Post Danmark.

Almannatryggingar og sjúkratryggingar

Einstaklingur sem flytur til útlanda vegna starfs og á ekki lengur lögheimili í Danmörku, er heldur ekki skráður í þjóðskrá.

Þar með tilheyrir viðkomandi ekki lengur almannatryggingakerfinu í Danmörku og skal því skila sjúkrasamlagskortinu til skrifstofu sveitarfélagsins. Almannatryggingar ná heldur ekki til viðkomandi þó að hann sé til að mynda í sumarfríi í Danmörku.

Danmörk hefur gert samning um almannatryggingar við önnur norræn ríki, EES ríkin og nokkur önnur ríki.

Á norrænu almannatryggingagáttinni den nordiske socialforsikringsportal eru upplýsingar um almannatryggingar á Norðurlöndum. Á vefgáttinni geta einstaklingar sem flytja, starfa eða stunda nám annars staðar í norrænu ríkjunum, kynnt sér reglur sem um þá gilda. Einnig eru þar upplýsingar um ýmsa þjónustu sem einstaklingar geta átt rétt á.

Nánar um almannatryggingar við störf í útlöndum á borger.dk.

Atvinnuleysissjóðir og dagpeningar

Þegar fólk hyggst flytja frá Danmörku til annars norræns ríkis getur það flutt áunninn dagpeningarétt með sér.

Ef einstaklingur hefur verið skráður í dönskum atvinnuleysistryggingasjóði getur hann yfirfært trygginga- og starfstímabil sín frá Danmörku til atvinnuleysistryggingasjóðs í öðru norrænu ríki.

Það tímabil sem hann hefur verið tryggður í dönskum atvinnuleysistryggingasjóði verður því reiknað með þegar metinn er réttur til dagpeninga í öðru norrænu ríki.

Vilji einstaklingur að trygginga- og starfstímabil verði reiknuð með til atvinnuleysistryggingar í öðru EES-ríki, verður viðkomandi að hafa vottorð um þau. Atvinnuleysistryggingasjóðurinn gefur út vottorð sem nefnist PD U1/E301 DK eða N 301 DK.

Vilji einstaklingur að trygginga- og starfstímabil verði reiknuð með til atvinnuleysistryggingar í Noregi, á Íslandi, í Lichtenstein eða Sviss þarf hann að hafa vottorðið PD U1/E301 DK, en N 301 DK ef um er að ræða önnur EES-ríki. Sama eyðublaðið - EØS 4 - er notað til að sækja um bæði vottorð.

Nánari upplýsingar eru á borger.dk.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um flutning til útlanda fást hjá skrifstofu þjóðskrár í búsetusveitarfélaginu.

Nánari upplýsingar eru einnig í bæklingi Skattayfirvalda "Skattar – þegar þú flytur til útlanda" "Skatten - når du flytter til udlandet" á skat.dk

Nánari upplýsingar um flutninga til Svíþjóðar hjá dansk-sænsku landamæraþjónustunni Øresund Direkt.

Nánar um að leita að starfi eða að stunda nám í ESB á eures.dk.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.