Aðstoð við fatlaða í Danmörku
Upplýsingar um tækifæri og réttindi fatlaðra í Danmörku.
Hér eru upplýsingar um fjölmörg tilboð og stuðningsaðgerðir sem bjóðast fötluðum og þeim sem eiga fötluð börn. Ekki er hér um tæmandi listi yfir stuðningsaðgerðir að ræða. Hafa skal samband við sveitarfélagið kommune til að fá nákvæmar upplýsingar um réttindi.
Nánari upplýsinar eru á vefsíðunni borger.dk, einnig má fá leiðbeiningar hjá styrktarfélögum fatlaðra í Danmörku Danske Handicaporganisationer.
Fullorðnir með fötlun
Sveitarfélagið getur greitt viðbótarkostnað.
Einstaklingar milli 18 og 65 ára geta fengið viðbótarkostnað greiddan, sem tengist varanlegri líkamlegri eða andlegri örorku.
Kostnaður verður að vera tilkominn vegna hreyfihömlunar, sem hefur mikil áhrif á daglegt líf og sem veldur því að nauðsyn er á miklum stuðningi til þess að einstaklingur geti lifað eðlilegu lífi.
Dæmi um kostnað sem greiddur er:
- tómstundastarf
- sérstök námskeið
- matur, þrif og föt
- sértæk aðstoð við barnapössun
- aðstoð við hreingerningar, snjómokstur og þess háttar
- lyf
- samgöngur í frítíma og til og frá vinnu/menntastofnun
- framleg vegna leiguhúsnæðis sem sveitarfélag útvegar
Sækja skal til sveitarfélagsins um styrk til greiðslu á viðbótarkostnaði. Sveitarfélagið metur hvort viðkomandi á rétt á styrk.
Hægt er að fá aðstoðarmann
Einstaklingar milli 16 og 67 ár, með líkamlega eða andlega örorku, geta sótt um að fá styrk hjá sveitarfélagi sínu til að ráða aðstoðarmann.
Þetta er styrkur fyrir fatlaða einstaklinga og getur því ekki komið í staðinn fyrir aðra aðstoð eins og til að mynda almenna heimilisaðstoð.
Stuðningurinn felur í sér að hægt er að fá 15 tíma aðstoð á mánuði sem einstaklingurinn nýtir að vild.
Sá sem aðstoðina þiggur á rétt á að velja eigin aðstoðarmann. Sveitarfélagið verður þó að samþykkja og ráða viðkomandi aðstoðarmann. Aðstoðarmaðurinn verður helst að hafa áhuga á eða reynslu af vinnu með fötluðum.
Sótt er um hjá sveitarfélaginu.
Einstaklingar eiga rétt á hjálpartækjum
Sveitarfélagið lánar hjálpartæki endurgjaldslaust eða veitir fötluðum einstaklingum styrki til kaupa á hjálpartækjum.
Þetta geta t.d. verið hjólastólar, göngugrindur eða hækkun á salernissetu. Einnig geta þetta verið hjálpartæki sem viðkomandi einstaklingur ber á sér eins og heyrnartæki, hárkolla, kviðslitsbindi, stuðningsvesti, sykursýkis- og stámahjálpartæki og annað.
Ef um er að ræða hjálpartæki sem nýtt eru í sjúkrahúsmeðferð, er venjan að sjúkrahúsið láni þau.
Ef þörf er á hjálpartækjum þar sem fatlaður einstaklingur er í námi, skal hafa samband við menntastofnunina. Gott er að gera það tímanlega áður en skólaárið eða önnin hefst.
Hafið samband við vinnumiðlunina ef þörf er á hjálpartækjum á vinnustað.
- Nánari upplýsingar um reglur um hjálpartæki eru í leiðbeiningum óhlutdrægra ráðgjafa fyrir fatlaða, á vefsíðunni guiden fra Den Uvildige Konsulentordning for Handikappede.
- í leiðbeiningum félagsmálaráðuneytisins: Socialministeriets vejledning er listi yfir styrki til hjálpartækja.
Hægt er að sækja um bifreiðastyrk
Þeir sem eru með varanlega líkamlega eða andlega orörku, geta sótt um bifreiðastyrk til sveitarfélagsins.
Öroka verður að vera svo mikil að nauðsyn sé á bíl til þess að geta:
- fengið eða haldið starfi
- stundað nám
- tekið þátt í starfsemi og viðburðum
Sveitarfélagið metur umsóknir með tilliti til heilbrigðis, félagslegra aðstæðna og færni einstaklings til að fara á milli, t.d. hve langt þarf að fara. Auk þess mun sveitarfélagið meta hvort hægt er að koma til móts við ferðaþörf viðkomandi á annan hátt, til að mynda með fötlunarakstri.
Sótt er um bifreiðastyrk til sveitarfélagsins. Um er að ræða styrk sem er vaxtalaust lán.
Fjárhagslegar aðstæður skipta engu um hvort hægt er að fá bifreiðastyrk, eða um hve hátt lánið er. En fjárhagslegar aðstæður skipta máli við útreikning á því hve stóran hluta lánsins skal greiða til baka.
Á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins Socialministeriets netsted og í leiðbeiningum óhlutdrægra ráðgjafa fyrir fatlaða Den Uvildige Konsulentordning for Handikappede eru upplýsingar um reglur vegna bifreiðastyrks.
Heyrnaskertir geta fengið aðstoð túlks
Túlkar geta hjálpað þeim sem eru mikið heyrnaskretir, heyrnalausir eða hafa misst heyrnina. Einstaklingar eiga rétt á:
- tímabundinni aðstoð túlks þegar þeir fara í starfsviðtal, til læknis og fæðingarundirbúning, með bílinn í skoðunn, koma fyrir rétt, taka þátt í félagsstarfi og öðru starfi sem fylgir daglegu lífi.
- aðstoð túlks í námi og starfi
- félagslegri túlkun í allt að 7 tíma á ári (2010), til að mynda í fjölskylduboðum.
Nánari upplýsingar á vefsíðu túlkasamtakanna Den Nationale Tolkemyndigheds netsted og í bæklingunum "Når du skal bruge tolk på uddannelsen" og "Når du skal bruge tolk til arbejdspladsen".
Börn með fötlun
Aðstoð við þá sem eiga fötluð börn
Meginreglan í lögum er sú að fatlað barn á rétt á eins miklum stuðningi vegna örorku sinnar og mögulegt er. Markmiðið er að bæði foreldrar og barn geti lifað eins eðlilegu lífi og mögulegt er, þrátt fyrir álag sem fötlunin hefur í för með sér.
Aðstoð við fjölskyldur getur til að mynda falist í:
almennri og sértækri ráðgjöf sem tengist því að eiga fatlað barn
boði um aðstoð við fjölskylduna, sólarhringsgæslu, breytingum á húsnæði og öðru.
fjárhagslegum stuðningi sem felst í greiðslu viðbótarkostnaðar og greiðslu vegna tekjumissis.
Einnig má hafa samband við samtök þekkingar- og sérfræðiráðgjafa: Den nationale Videns- og Specialrådgivningsorganisation (VISO) eða biðja um aðstoð hjá landsamtökum fatlaðra.
- Dönsk samtök fatlaðra
- Sjaldgæfar sjúkdómsgreiningar
- Félagsmálaráðuneytið um félagsleg tilboð til fatlaðra barna og ungmenna sociale tilbud til børn og unge med handikap.
- Bæklingur félagsmálaráðuneytisins fyrir foreldra fatlaðra barna: "Forældre til et barn med handikap - guide til hjælp og støtte".
Þeir sem sjá fyrir fötluðu barni geta fengið viðbótarkostnað greiddan.
Sveitarfélagið greiðir nauðsynlegan viðbótarkostnað vegna barns undir 18 ára aldri sem er með varanlega líkamlega eða andlega örorku eða er haldið ólæknandi eða langvinnum sjúkdómi.
Styrkurinn er háður því að barnið búi heima hjá foreldrum. Einnig er það skilyrði að viðbótarkostnaður sé vegna örorku.
Fjölskylda með fatlað barn getur til að mynda fengið greiddan viðbótarkostnað vegna:
- sérstaks fæðis
- lyf
- klæðnaðar
- þvotta
- þátttöku í tómstundastarfi
- námskeiða fyrir aðstandendur fatlaðra
Einnig getur verið um að ræða kostnað vegna ferða barnsins vegna náms, meðferðar og í frítíma.
Nánari upplýsingar um reglurnar eru á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins: Socialministeriets netsted.
Greiðslur vegna tekjumissis
Foreldrar fatlaðs barns geta fengið greiddan tekjumissi ef annað foreldrið annast barnið heima.
Uppfylla verður nokkur skilyrði til að fá greiddan tekjumissi og það er sveitarfélagið sem greiðir styrkinn.
Styrkurinn er greiddur þegar barnið er í umsjón foreldris heima og þegar það er hagkvæmt að foreldri sjái um barnið heima.
Örorka barnsins er mikil og varanleg eða barnið er haldið svonefndum ólæknandi eða langvinnum sjúkdómi.
Nánari upplýsingar um reglurnar eru á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins: Socialministeriets netsted.
Hægt er að sækja um bifreiðastyrk
Foreldrar og fósturforeldrar fatlaðs barns geta sótt um styrk til að bifreiðakaupa vegna fötlunar barnsins.
Foreldrarnir/fósturforeldrarnir geta sótt um bifreiðastyrk fyrir hönd barnsins, en barnið er samt sem áður umsækjandinn. Það er því örorka barnins og þörf þess fyrir bifreið sem sker úr um hvort bifreiðastyrkur fæst.
Á vefsíðu félagsmálaráðuneytisins Socialministeriets netsted og í leiðbeiningum óhlutdrægra ráðgjafa fyrir fatlaða Den Uvildige Konsulentordning for Handikappede eru upplýsingar um reglur vegna bifreiðastyrks.
