Bankareikningur í Danmörku
Eftirfarandi eru upplýsingar um hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að geta stofnað bankareikning og taka bankalán í Danmörku.
Að stofna bankareikning
Allir ættu að geta opnað bankareikning í Danmörku, án þess að vera með kennitölu, gegn framvísun gildra persónuskilríkja með mynd.
Í raun er það þó þannig að margir bankar leyfa aðeins einstaklingum með danska kennitölu að opna bankareikning. Einstaklingar fá danska kennitölu ef þeir búa eða eru skattskyldir í Danmörku.
Greiðslukort og lán
Til þess að fá greiðslukort eða taka lán þurfa einstaklingar að vera skráðir í þjóðskrá í Danmörku og hafa kennitölu (CPR-nummer).
Það er bönkunum í sjálfvald sett hvort þeir gefa út greiðslukort eða veita lán. Því er mikilvægt að ræða við bankann um hvaða möguleikar eru í boði.
NemKonto
Allir íbúar Danmerkur þurfa að eiga svokallaðan „NemKonto" reikning.
Það er venjulegur bankareikningur sem opinberir aðilar og ákveðin fyrirtæki nota til þess að greiða einstaklingum peninga.
Þar er t.d. um að ræða barnbætur, eftirlaun, bætur frá hinu opinbera og ofgreiddan skatt.
Veita þarf bankastofnun upplýsingar um hvaða reikning skal nota sem NemKonto.
Nánari upplýsingar á nemkonto.dk.
