Bifreið í Danmörku
Eftirfarandi reglur gilda fyrir þá sem hyggjast hafa með sér bifreið þegar þeir flytja til Danmerkur.
Ef einstaklingur býr í Danmörku skal bifreið viðkomandi vera skráð þar.
Flytji einstaklingur með sér bifreið frá öðru norrænu ríki skal hann innan 14 daga:
- Láta tollafgreiða bifreiðina hjá skattstjóra svæðisins Skattecenter og greiða tollinn.
- Tryggja bifreiðina hjá tryggingarfélagi og biðja um sérstaka staðfestingu á tryggingunni (forsikringsbevis).
- Þegar bifreiðin hefur verið tollafgreidd, skoðuð, tryggð og skráningargjöld hafa verið greidd, er hægt að skrá hana inn í landið.
Skráningargjöld
Greiða skal skráningargjöld registreringsafgift af bifreiðum sem fluttar eru til landsins, bæði nýjum og notuðum. Þetta á við hvort heldur bifreið er flutt inn frá ESB ríki eða öðrum löndum.
Einnig skal greiða skráningargjöld af bifreiðum, sem fluttar eru inn toll- og virðisaukaskattsfrjálsar sem hluti af búslóð.
Tollskoðun
Fyrst skal láta skoða bifreiðina hjá viðurkenndum skoðunaraðila.
Gerð er almenn ástandsskoðun á bifreiðinni og einnig svokölluð „tollskoðun" sem miðar að því að sannreyna sögu bifreiðarinnar, ekinn kílómetrafjölda, útbúnað og ástand almennt.
Gjöld
Áður en númeraplötur eru afhentar fyrir bifreiðina, skal eigandi að hafa samband við embætti skattstjóra svæðisins og greiða skráningargjald.
Útreikningur skráningargjalds tekur mið af matsvirði bifreiðarinnar. Markaðsvirði bifreiðarinnar er lagt til grundvallar, ásamt skráningargjaldi og upprunalegu verði bifreiðarinnar.
Hafa skal með/senda inn:
- Eyðblaðið 21.016 (Anmeldelsesblanket 21.016)
- Skoðunarvottorð (og tollskoðunarvottorð) frá bifreiðaskoðun
- Erlenda skráningarvottorðið
- Ef við á, kvittun fyrir greiðslu tolla (ef bifreið er keypt frá landi utan ESB)
- Peninga til að greiða gjaldið
Þegar skráningargjaldið hefur verið greitt, fær eigandi afhent vottorð sem nota skal við skráningu bifreiðarinnar inn í landið.
Bifreiðin er einnig skráð hjá bifreiðaeftirlitinu. Við skráningu skal hafa með kvittun fyrir greiddu skráningargjaldi, tryggingarskírteini, skoðunarvottorð, erlent skráningarvottorð (skráningarvottorð inn í landið) og gömlu númeraplöturnar.
Ef bifreið er ekki skráð innan 14 daga, skal afskrá bifreiðina í heimalandinu og leigja bráðabirgðanúmeraplötur hjá bifreiðaeftirlitinu.
Vinsamlega athugið að 14 daga fresturinn á ekki við ef flutt er inn bifreið með einstaklingi (innflutt). Þá skal afskrá bifreiðina í heimalandinu um leið og komið er með hana til Danmerkur og fá á hana bráðabirgðanúmeraplötur hjá bifreiðaeftirlitinu og fylgja að öðru leiti leiðbeiningunum hér að ofan.
- Upplýsingar um innflutning á notuðum einkabifreiðum eru á vefsíðunni: indførsel af brugte personbiler á vefsíðu Skattstjóra: Skat.
Reglur um þá sem búa tímabundið í landinu og þá sem ferðast yfir landamæri til vinnu
Ef einstaklingur er búsettur í Danmörku tímabundið, skal hann sækja um leyfi hjá skattstjóra (SKAT) til að nota bifreið sem skráð er erlendis, í Danmörku.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað á vefsíðu skattstjóra.
Ef viðkomandi býr og er skráður í þjóðskrá í erlendis, má hann aka bíl sem skráður er í heimalandinu, í Danmörku.
