Einkatryggingar í Danmörku
Hér að neðan eru upplýsingar um lögbundnar tryggingar í Danmörku. Einnig eru hér upplýsingar um algengustu tryggingar sem dönsk tryggingarfélög bjóða.
Lögbundnar tryggingar
Nokkrar tegundir trygginga eru lögbundnar í Danmörku.
- Ef einstaklingur á skráð ökutæki skal hann vera með ábyrgðartryggingu.
- Hundaeigendum ber skylda til að tryggja hunda sína.
- Ef einstaklingur er með húsnæðislán er algengt að bankinn fari fram á að húsnæðið sé brunatryggt.
Nánari upplýsingar um tegundir trygginga á vefsíðu upplýsingamiðstövar um tryggingamál.
Algengar tegundir trygginga
Það er skynsamlegt að innbús- og ábyrgðartryggja heimilið. Oft er hægt að kaupa pakka með bruna-, innbús- og ábyrgðartryggingu. Þannig pakki nefnist yfirleitt heimilistrygging (husforsikring). Að auki getur verið gott að vera slysatryggður.
Innbústrygging
Innbústrygging gildir ef persónulegum munum eins og fötum, húsgögnum og reiðhjóli er stolið og fyrir skemmdarverkum. Innbústryggingin gildir einnig ef vatnstjón verður eða ef viðkomandi lendi í umferðaróhappi.
Ábyrgðartrygging
Ábyrgðartrygging gildir ef tryggingataki veldur skemmdum af gáleysi. Ábyrgðartryggingin bætir það tjón sem tryggingataki eða fjölskylda hans veldur ef slys verður. Það þýðir að tryggingin greiðir ef um er að ræða bætur eða kostnað vegna bótakrafna.
Slysatrygging
Ef einstaklingur eða fjölskylda hans verða fyrir slysi er gott að vera með slysatryggingu.
Til eru tvær gerðir slysatrygginga: altrygging sem gildir bæði þegar viðkomandi er í vinnu og heima og hlutatrygging sem aðeins gildir utan vinnu.
Aðrar tryggingar
Til eru margar aðrar tegundir trygginga í Danmörku. Nánari upplýsingar um tegundir trygginga á vefsíðu upplýsingamiðstövar um tryggingamál.
Auk þessa er vakin athygli á því að einstaklingar þurfa sjálfir að tryggja sig gegn atvinnuleysi í Danmörku og er það gert hjá atvinnuleysistryggingasjóðum (a-kasse). Nánar á vefsíðu Halló Norðurlanda um atvinnuleysisbætur í Danmörku.
Ungt fólk og tryggingar
Tryggingar foreldra gilda oft fyrir ungt fólk þar til það nær 21 árs aldri.
Þetta á við ef viðkomandi býr heima og á lögheimili hjá foreldrum sínum. Það á einnig við ef viðkomandi býr einn í íbúð eða á stúdentagörðum.
Þegar viðkomandi hefur búskap eða eignast barn verður hann að vera með eigin innbústryggingu.
Að finna tryggingafélag
Á vefsíðunni forsikringsguiden.dk er hægt að bera saman verð og tryggingaskilmála fjölmargra danskra tryggingafélaga. Forsikringsguiden.dk er samstarf neytendaráðsins (Forbrugerrådet) og upplýsingamiðstöð tryggingamála (Forsikringsoplysningen).
Nánari upplýsingar um tryggingar í Danmörku á borger.dk.
