Document Actions

Flytja með börn til Danmerkur

Meðganga og fæðing í Danmörku
Kona sem á von á barni skal leita læknis. Boðið er upp á grunnþjónustu, mæðraskoðun og viðtalsmeðferð, fyrir barnshafandi, en hvernig þjónustan er nýtt fer að sjálfsögðu eftir þörfum hvers og eins.
Fæðingarorlof í Danmörku
Á þessari síðu eru upplýsingar um hverjir eiga rétt á fæðingarorlofi og hversu lengi, auk upplýsinga um hvaða skjöl þarf að leggja fram til að sýna fram á rétt til fæðingarorlofs.
Greiðslur í fæðingarorlofi í Danmörku
Mismunandi reglur gilda um greiðslur í fæðingarorlofi og við ættleiðingu, eftir því hvort viðkomandi einstaklingur er í starfi, atvinnulaus eða námsmaður.
Barna- og ungmennabætur í Danmörku
Hér eru upplýsingar um barna- og ungmennabætur sem greiddar eru barnafjölskyldum sem búa eða eiga aðild að almannatryggingum í Danmörku.
Meðlag
Ef foreldrar barns búa ekki saman ber því foreldri sem ekki er með barnið á sínu framfæri skylda til að greiða hinu meðlag.
Barnagæsla í Danmörku
Í Danmörku er fjöldi ólíkra möguleika á barnagæslu fyrir börn á aldrinum 8 mánaða til 6 ára. Foreldrar greiða sjálfir fyrir barnagæsluna og getur kostnaður verið mjög mismunandi, en sveitarfélög geta veitt afslátt. Barn verður að hafa kennitölu til að komast að í barnagæslu.
Grunnskóli í Danmörku
Öll börn í Danmörku eiga rétt á og skulu fá kennslu í 10 ár. Börn ríkisborgara frá öðru norrænu ríki eiga rétt á því að ganga í danskan grunnskóla.
Menntaskólanám í Danmörku
Í Danmörku er fjórar tegundir menntaskólanáms, eða „ungmennanáms". Stúdentspróf, æðra undirbúningspróf, æðra verslunarpróf og æðra tæknipróf. Námsleiðirnar veita aðgang að æðra námi.
Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.