Document Actions

Barna- og ungmennabætur í Danmörku

Hér eru upplýsingar um barna- og ungmennabætur sem greiddar eru barnafjölskyldum sem búa eða eiga aðild að almannatryggingum í Danmörku.

Litauiska skolbarn
Ljósmyndari
Tomas Lopata/norden.org

Í Danmörku eru greiddar barna- og ungmennabætur til foreldra barna undir 18 ára aldri, í daglegu tali kallast þær „barnabætur" eða „barnaávísanir". Greiðslurnar eru sjálfkrafa greiddar móður barnsins.

Ekki er því nauðsynlegt að sækja um bæturnar, nema að þær eigi að greiðast til annarra en móðurinnar.

Hverjir eiga rétt á barna- og ungmennabótum?

Barna- og ungmennabætur eru greiddar ef

  • barnið býr í Danmörku og sá einstaklingur sem fer með forræði þess er að fullu skattskyldur í Danmörku. Það þýðir almennt að viðkomandi búi í Danmörku.
  • ef hann er ESB eða EES ríkisborgari og launþegi eða sjálfstæður atvinnurekandi í Danmörku. Það þýðir að viðkomandi á aðild að almannatryggingum í Danmörku. Í vafamálum er ráðlegt að hafa samband við það sveitarfélag sem starfað er í.

Barnið má ekki vera í forsjá hins opinbera eða vera í hjónabandi. Sveitarfélagið má ekki hafa hafa gefið fyrirmæli til foreldra vegna þess að þeir hafi ekki sinnt skyldum sínum sem foreldrar. Fyrirmæli til foreldra geta til að mynda falist í því að foreldrar eigi að sjá til þess að barnið mæti í skóla daglega. Fyrirmælin eru gefin og gilda í 3 mánuði í senn.

Hafið samband við viðkomandi sveitarfélag til að fá nánari upplýsingar um réttindi til barna- og ungmennabóta.

Ef barna- og ungmennabæturnar á að greiða til annarra en móður barnsins, skal sækja um það á sérstöku eyðublaði. Skattstjóri og sveitarfélagið kanna hvort öllum skilyrðum er mætt.

Hve háar eru bæturnar?

Upphæð barna- og ungmennabóta fer eftir aldri barnsins.

Ekki er greiddur skattur af upphæðinni og hún telst ekki með sem tekjur við útreikning félagslegra bóta eða námstyrkja.

Barnabætur:

  • 0-2 ára: 4.248 danskar krónur ársfjórðungslega (2011)
  • 3-6 ára: 3.363 danskar krónur ársfjórðungslega (2011)
  • 7-14 ára: 2.646 danskar krónur ársfjórðungslega (2011)

Ungmennabætur:

  • 15-17 ára: 882 danskar krónur á mánuði (2011)

Hámarksgreiðsla barna- og ungmennabóta á ári er 35.000 danskar krónur, sama hve mörg börn viðkomandi á.

Barna- og ungmennabætur til þeirra sem ferðast yfir landamæri til vinnu

Meginreglan er sú að barnabætur eru greiddar út í því landi sem viðkomandi býr í. En vinni einstaklingur í öðru landi en hann býr, á hann oft rétt á barnabótum í báðum löndum.

Ef bætur í vinnulandinu eru hærri en í heimalandinu, á það land sem viðkomandi starfar í, greiða mismuninn á bótum í heimalandi og starfslandinu.

Ef fjölskyldan býr til að mynda í Svíþjóð, en viðkomandi starfar í Danmörku, greiðast barnabæturnar frá Svíþjóð. En ef bæturnar sem viðkomandi á rétt á í Danmörku, eru hærri en bæturnar í Svíþjóð, á Danmörk að greiða mismuninn milli bóta þessara tveggja ríkja.

Kærur

Sé einstaklingur óánægður með ákvörðun sveitarfélags um barna- og ungmennabætur er hægt að kæra ákvörðunina til Félagsmálanefndar. Kæruna skal senda til sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar:

Nánari upplýsingar um barna- og ungmennabætur hjá sveitarfélögum og á vefsíðunni borger.dk eða SKAT.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.