Document Actions

Barnagæsla í Danmörku

Í Danmörku er fjöldi ólíkra möguleika á barnagæslu fyrir börn á aldrinum 8 mánaða til 6 ára. Foreldrar greiða sjálfir fyrir barnagæsluna og getur kostnaður verið mjög mismunandi, en sveitarfélög geta veitt afslátt. Barn verður að hafa kennitölu til að komast að í barnagæslu.

Dagis
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Vöggustofa og leikskóli

Hægt er að sækja um vöggustofupláss fyrir börn á aldrinum 8 mánaða til tveggja ára og fyrir börn á aldrinum 3 til 6 ára er sótt um leikskólapláss um leið og komið er til landsins, en barnið fær ekki pláss fyrr en það hefur fengið kennitölu.

Sækja skal um hjá sveitarfélaginu

Ef sækja á um pláss fyrir barn á vöggustofu eða í leikskóla, skal hafa samband við viðkomandi skrifstofu „pladsanvisningen" hjá búsetusveitarfélagi. Ef ekki er laust pláss, fer barnið á biðlista.

Greitt skal fyrir barnagæsluna

Einstaklingar greiða fyrir vöggustofu og leikskólavist í Danmörku. Viðkomandi skrifstofa hjá búsetusveitarfélagi gefur upplýsingar um verð og afsláttarkjör.

Verðið er mismunandi, en foreldrar skulu samt sem áður aldrei greiða meira en 30% af raunkostnaði barnagæslunnar. Sveitarfélög sem tryggja öllum börnum gæslu mega þó krefjast sérstakrar aukagreiðslu foreldra.

Dagvistun barna: Annar valkostur en vöggustofa

Einnig er hægt að sækja um dagvist fyrir barnið. Dagmóðir er einstaklingur sem gætir barna heima hjá sér.

Dagmóðir gætir að hámarki fimm barna í einu, oftast eru börnin á aldrinum 6 mánaða til þriggja ára.

Dagmóðir er valkostur við vöggustofu og er hún ráðin, launuð og samþykkt af sveitarfélaginu.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.