Document Actions

Grunnskóli í Danmörku

Öll börn í Danmörku eiga rétt á og skulu fá kennslu í 10 ár. Börn ríkisborgara frá öðru norrænu ríki eiga rétt á því að ganga í danskan grunnskóla.

Skolebarn, København
Ljósmyndari
Karin Beate Nøsterud/norden.org

Fræðsluskylda

Í Danmörku er ekki skólaskylda, en öll börn eiga rétt á og skulu fá kennslu.

Fræðsluskyldan er 10 ár og hefst hún þann 1. ágúst árið sem barnið verður sex ára.

Skyldukennslan getur farið fram í grunnskólum, sem eru ókeypis, í einkaskólum, þar sem foreldrar greiða fyrir kennsluna eða á heimili nemanda.

Grunnskólinn

Kennsla í grunnskóla varir í 10 ár og skiptist í forskólabekk og eftir það1. - 9. bekk, og auk þess er valfrjálst að taka 10. bekk.

Börn norrænna ríkisborgara eiga rétt á því að ganga í grunnskóla í því skólahverfi sem fjölskyldan býr eða dvelur í.

Möguleiki er á því að velja annan grunnskóla eða hverfisskóla, þar með talið grunnskóla í öðru sveitarfélagi en búsetusveitarfélaginu, háð því skilyrði að það sé laust pláss í þeim skóla sem óskað er eftir.

Tengt efni
  • Einkunnaskali í danska menntakerfinu

    Hér eru upplýsingar um einkunnaskala sem notaður er í Danmörku og hvernig erlendar einkunnir eru umreiknaðar í danskar einkunnir.

  • Grunnskóli (Samstarfssvæði)
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.