Document Actions

Meðganga og fæðing í Danmörku

Kona sem á von á barni skal leita læknis. Boðið er upp á grunnþjónustu, mæðraskoðun og viðtalsmeðferð, fyrir barnshafandi, en hvernig þjónustan er nýtt fer að sjálfsögðu eftir þörfum hvers og eins.

Jordmor
Ljósmyndari
Karen Beate Nøsterud - norden.org

Farðu til heimilislæknis

Barnshafandi konur eiga að fara til heimilislæknis, læknis sem skráður er í sjúkrasamlagsskírteini viðkomandi.

Læknirinn framkvæmir fyrstu skoðun og útbýr meðgönguskýrslu sem fylgir konunni alla meðgönguna.

Alltaf þegar farið er til læknis, á slysavarðsstofu eða sjúkrahús, skal sýna sjúkrasamlagsskírteini.

Meðgönguskýrsla

Í meðgönguskýrslu skulu skráðar allar heimsóknir til læknis, ljósmóður/á fæðingardeild og ómskoðunardeild.

Í tengslum við fyrstu læknisskoðun mun læknirinn einnig heimsækja væntanlegan fæðingarstað og meta hann út frá heilbrigðisstöðlum og samkvæmt óskum konunnar/væntanlegra foreldra.

Þjónusta á meðgöngu

Stjórn heilbrigðismála í Danmörku mælir með eftirfarandi grunnþjónustu fyrir heilbrigða konu á meðgöngu:

  • 3 heimsóknir til heimilislæknis
  • 2 ómskoðanir
  • 4 - 7 heimsóknir til ljósmóður
  • Ef við á meðgönguheimsókn hjúkrunarfræðings

Þjónusta á meðgöngu fer að sjálfsögðu eftir þörfum og óskum hverrar konu fyrir sig.

Nánari upplýsingar um leiðbeiningar og ráð stjórnar heilbrigðismála eru á vef stofnunarinnar.

 

 

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.