Meðlag
Ef foreldrar barns búa ekki saman ber því foreldri sem ekki er með barnið á sínu framfæri skylda til að greiða hinu meðlag.
Foreldrum ber skylda til að sjá fyrir börnum sínum. Ef einstaklingur býr ekki með barni sínu, t.d. vegna skilnaðar, skal hann greiða því foreldri meðlag sem er með barnið á sínu framfæri.
Ef foreldrar geta ekki náð samkomulagi um upphæð, ákveður hið opinbera (statsamtet) upphæðina.
Meðlag greiðist þar til barnið nær 18 ára aldri, en ef barnið stundar nám, getur þurft að greiða námsmeðlag til 24 ára aldurs.
Það foreldri sem sér um framfærslu barnsins, getur að auki sótt um sérstakar greiðslur frá hinu foreldrinu vegna skírnar, fermingar og þess háttar auk annarra sérstakra viðburða.
- Nánar um meðlag á borger.dk.
- Nánar um greiðslur vegna náms á borger.dk.
- Nánar um sérstakar greiðslur á vefsíðu hins opinbera (Statsforvaltningerne).
Upphæðir
Upplýsingar um upphæðir meðlagsgreiðslna eru á vefsíðu hins opinbera (Statsforvaltningerne).
Meðlag með barni í öðru landi
Það skiptir engu máli fyrir meðlagsgreiðanda þó meðlagsþiggjandi flytji til annars lands.
Hið opinbera í Danmörku ákveður upphæð meðlags á grunni tekna meðlagsgreiðanda.
Upphæðin er því sú sama óháð því hvort barnið býr í Danmörku eða í öðru landi.
Nánar um greiðslu og innheimtu meðlagsgreiðslna á Norðurlöndum á vefsíðu Familiestyrelsen.
