Document Actions

Menntaskólanám í Danmörku

Í Danmörku er fjórar tegundir menntaskólanáms, eða „ungmennanáms". Stúdentspróf, æðra undirbúningspróf, æðra verslunarpróf og æðra tæknipróf. Námsleiðirnar veita aðgang að æðra námi.

löpende
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Að grunnskóla loknum eru ýmsar mismunandi námsleiðir.

Stúdentspróf (stx)

Stúdentspróf er almennt undirbúningsnám. Það veitir aðgang að æðri menntun. Þar eru kennd fög á sviði hugvísinda, náttúrufræði og samfélagsfræði. Aðgangskrafan er grunnskólapróf og tekur námið 3 ár. Námið skiptist í ½ árs grunnnám og 2½ árs nám samkvæmt námsbraut.

Æðra undirbúningspróf (hf)

Hf er almennt menntaskólanám sem veitir aðgang að æðra námi. Hf er almennt undirbúningsnám. Námið tekur 2 ár og aðgangskrafan er 10. bekkjar próf.

Æðra verslunarpróf (hhx)

Hhx er viðskiptamiðað menntaskólanám. Auk almennra námsgreina eru kenndar greinar á sviði rekstrar- og þjóðhagfræði auk erlendra tungumála. Hhx veitir aðgang að æðra námi. Aðgangskrafan er grunnskólapróf og tekur námið 3 ár. Námið skiptist í ½ árs grunnnám og 2½ árs nám samkvæmt námsbraut.

Æðra tæknipróf (htx)

Htx er starfsmiðað menntaskólanám með áherslu á tækni- og náttúrufræðigreinar. Hluti kennslunnar fer fram á verkstæðum og rannsóknarstofum. Htx veitir aðgang að æðra námi. Aðgangskrafan er grunnskólapróf og tekur námið 3 ár. Námið skiptist í ½ árs grunnnám og 2½ árs nám samkvæmt námsbraut.

Tengt efni
  • Samningur um norrænt menntunarsamfélag á framhaldsskólastigi (Samningur)

    Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um norrænt menntunarsamfélag á framhaldsskólastigi (sem tekur til almennra bóknáms- og starfsmenntaskóla)

  • Framhaldskólamenntun (Samstarfssvæði)
  • Starfsnám (Samstarfssvæði)
  • Einkunnaskali í danska menntakerfinu

    Hér eru upplýsingar um einkunnaskala sem notaður er í Danmörku og hvernig erlendar einkunnir eru umreiknaðar í danskar einkunnir.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.