Document Actions

Þjóðskrá í Danmörku

Eftirfarandi eru upplýsingar um hvenær einstaklingur á rétt á að skrá sig í þjóðskrá í Danmörku.

Folkehav
Ljósmyndari
Silje Bergum Kinsten/ norden.org

Einstaklingur getur skráð sig í dönsku þjóðskrána, Det Centrale Personregister (CPR), þegar hann flytur til Danmerkur. Hann hefur mismunandi réttindi og skyldur eftir því í hvaða ríki hann er ríkisborgari og frá hvaða ríki hann flytur.

Tilkynna skal flutning í síðasta lagi 5 dögum eftir flutning til Danmerkur og skilyrði fyrir skráningu í þjóðskrá eru uppfyllt.

Viðkomandi skal tilkynna flutning í eigin persónu í þjónustumiðstöð í því sveitarfélagi sem flutt er til. Hafa skal meðferðis skilríki og veita upplýsingar um heimilisfang í Danmörku. Að auki skal hafa meðferðis önnur skjöl, allt eftir því í hvaða landi viðkomandi er ríkisborgari og frá hvaða landi hann flytur.

Þegar einstaklingur er skráður í danska þjóðskrá, CPR fær hann danska kennitölu.

Reglur um þjóðskrá í Danmörku eru í lögum um dönsku þjóðskrána Lov om Det Centrale Personregister.

Norrænir ríkisborgarar

Ef einstaklingur er norrænn ríkisborgari og flytur til Danmerkur frá öðru norrænu ríki, getur hann skráð sig í þjóðskrá í Danmörku ef hann áformar að dvelja a.m.k. 3 mánuði í landinu.

Ef hann hyggst dvelja lengur er 6 mánuði í Danmörku skal hann skrá sig í þjóðskrá.

Ef flutt er frá öðru norrænu ríki

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Gefa skal upp kennitölu í því landi sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um það heimilisfang sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.

Eftir að flutningur er tilkynntur til þjónustumiðstöðvar í Danmörku er send tilkynning til þjóðskrár þess lands sem flutt er frá um leið og skráning viðkomandi í Danmörku öðlast gildi.

Í sumum ríkjum þarf að tilkynna flutning frá landi til þjóðskrár áður en flutt er.

Ef flutt er frá ríki utan Norðurlandanna

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.

Flutningur til Grænlands

Einstaklingar sem hyggjast flytja til Grænlands frá öðru norrænu ríki skulu tilkynna flutning ef dvalartími er áætlaður lengri en 6 mánuðir.

Tilkynna skal um flutning til sveitarfélagsins.

ESB/EES ríkisborgarar

Ef einstaklingur er ríkisborgari í EES-ríki utan Norðurlanda og flytur til Danmerkur frá öðru norrænu ríki, getur hann skráð sig í þjóðskrá í Danmörku ef hann áformar að dvelja a.m.k. 3 mánuði í landinu.

Ef hann hyggst dvelja lengur er 6 mánuði í Danmörku skal hann skrá sig í þjóðskrá.

Ef flutt er frá öðru norrænu ríki

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Hafa skal meðferðis ESB-skráningarskírteini. Hægt er að sækja um það hjá Statsforvaltningen.
  • Gefa skal upp kennitölu í því landi sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.

Eftir að flutningur er tilkynntur til þjónustumiðstöðvar í Danmörku er send tilkynning til þjóðskrár þess lands sem flutt er frá að viðkomandi sé skráður í þjóðskrá í Danmörku.

Í sumum ríkjum þarf að tilkynna flutning frá landi til þjóðskrár áður en flutt er.

Ef flutt er frá ríki utan Norðurlandanna

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Hafa skal meðferðis ESB-skráningarskírteini. Hægt er að sækja um það hjá Statsforvaltningen.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.
  • Hafa skal meðferðis vottorð um hjónaband og börn.

Ríkisborgarar annarra ríkja

Ríkisborgarar annarra ríkja en Norðurlanda, ESB ríkja eða EES ríkja sem flytja til Danmerkur, skulu tilkynna um flutning til skráningarstofu, ef áætluð dvalarlengd er lengri en 3 mánuðir.

Eingöngu er hægt að fá skráningu sem aðfluttur í þjóðskrá, ef viðkomandi er með landvistarleyfi. Hægt er að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi hjá útlendingastofnun Udlændingeservice.

Ef flutt er frá öðru norrænu ríki

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Hafa skal dvalarleyfi meðferðis.
  • Gefa skal upp kennitölu í því landi sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um það heimilisfang sem flutt er frá.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.

Eftir að flutningur er tilkynntur til þjónustumiðstöðvar í Danmörku er send tilkynning til þjóðskrár þess lands sem flutt er frá að viðkomandi sé skráður í þjóðskrá í Danmörku.

Í sumum ríkjum þarf að tilkynna flutning frá landi til þjóðskrár áður en flutt er frá landinu.

Ef flutt er frá ríki utan Norðurlandanna

  • Hafa skal vegabréf eða önnur skilríki meðferðis á þjónustumiðstöð (Borgerservice).
  • Hafa skal dvalarleyfi meðferðis.
  • Veita skal upplýsingar um heimilisfang í Danmörku.
  • Hafa skal meðferðis vottorð um hjónaband og börn.

Kennitala ef einstaklingur er ekki skráður í þjóðskrá í Danmörku

Hægt er að fá kennitölu þó einstaklingur sé ekki skráður í þjóðskrá í Danmörku. Skilyrði er að viðkomandi starfi í landinu.

Til þess að fá „skattakennitölu" skal viðkomandi hafa samband við skattstofu SKAT og hafa meðferðis:

  • Skilríki
  • Vottorð um búsetu í öðru ríki.
  • Ráðningarsamning með upplýsingum um laun og ráðningartíma.
  • Dvalar- og atvinnuleyfi ef við á.

Tengt efni
  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Samningur um almannaskráningu (Samningur)

    Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um almannaskráningu.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.