Document Actions

Tollareglur í Danmörku

Eftirfarandi tollareglur gilda við flutning á vörum og búslóð til Danmerkur.

Öresundsbron
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Tollur við flutning frá ESB-ríki

ESB-borgarar geta flutt búslóð sína inn til Danmerkur.

Þó ber að hafa í huga að sérstakar reglur gilda um léttvín, áfengi og vindlinga.

Ef flutt er inn meira en leyfilegt er án þess að greiða tolla, ber að tilkynna það skattyfirvöldum. Viðkomandi verður gert að greiða toll.

Tollur við flutning frá ríki utan ESB

Ef brottflutningslandið er utan ESB, t.d. Noregur eða Ísland, þarf viðkomandi að hafa búið þar í a.m.k. eitt ár til þess að geta flutt búslóð sína til Danmerkur án þess að borga gjöld.

Nánari upplýsingar veita skattayfirvöld, Skat í Danmörku.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.