Document Actions

Tungumálanámskeið fyrir innflytjendur í Danmörku

Innflytjendur eldri en 18 ára eiga rétt á ókeypis dönskukennslu í Danmörku. Það á einnig við um norræna borgara.

Ordbog
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt

Einstaklingar eiga rétt á dönskukennslu þegar þeir flytja til Danmerkur ef þeir eru eldri en 18 ára og:

  • eru ríkisborgarar í öðru norrænu ríki
  • eru grænlenskir eða færeyskir og kunna ekki dönsku
  • eru danskir ríkisborgarar en tala ekki dönsku vegna langrar dvalar erlendis

Einstaklingar sem búa í öðru EES-ríki, t.d. Svíþjóð, eiga rétt á dönskukennslu í því sveitarfélagi sem þeir stunda atvinnu. Skilyrði er að viðkomandi sé eldri en 18 ára og ríkisborgari í öðru EES-ríki eða Sviss.

Einstaklingar skulu snúa sér til sveitarfélagsins til þess að fá nánari upplýsingar um kennslu.

Um námið

Dönskunáminu er skipt í þrjár leiðir:

  • Dönskunám 1 er ætlað nemum með enga eða litla skólagöngu sem hafa ekki lært að lesa og skrifa á móðurmálinu.
  • Dönskunám 2 er ætlað nemum sem hafa litla skólagöngu frá heimalandinu og gera má ráð fyrir að þurfi tiltölulega
    langan tíma til að tileinka sér dönsku sem annað tungumál.
  • Dönskunám 3 er ætlað nemum sem hafa meðal langa eða langa skólagöngu frá heimalandinu og gera má ráð fyrir að þurfi tiltölulega stuttan tíma til að tileinka sér dönsku sem annað tungumál.

Námsleiðunum er skipt í sex einingar og lýkur þeim með dönskuprófi.

Einstaklingar sem tala reiprennandi norsku eða sænsku

Mörg sveitarfélög bjóða upp á dönskunámskeið sem ætluð eru einstaklingum sem tala reiprennandi norsku eða sænsku.

Í Kaupmannahöfn er það Studieskolen sem sér um námstilboð fyrir skandínava.

Ungmenni yngri en 18 ára

Ungmenni yngri en 18 ára geta fengið dönskukennslu í skólanum eða í ungmennaskóla á vegum sveitarfélagsins. Þó er ungum skiptinemum ekki boðin sérstök ókeypis dönskukennsla í Danmörku.

Nánari upplýsingar veitir sveitarfélagið.

Nánari upplýsingar

Tengt efni

 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.