Document Actions

Flytja til Íslands

Hagnýtar upplýsingar fyrir Norðurlandabúa sem flytja til Íslands.
Þjóðskrá á Íslandi
Brýnt er að kynna sér vel reglur um lögheimilisskráningu og útgáfu á kennitölum ef flytja á til annars norræns ríkis. Hér má finna upplýsingar um skráningu á Íslandi, hvort sem um lögheimilisbreytingu er að ræða eða skráningu vegna tímabundinnar dvalar á Íslandi.
Húsnæði á Íslandi
Hér má finna upplýsingar um húsnæðiskerfið á Íslandi, um kaup, kaupleigu og leigu á húsnæði. Einnig eru hér upplýsingar um húsaleigubætur.
Innflutningur bifreiða til Íslands
Hér að neðan má finna almennar upplýsingar varðandi innflutning ökutækis til Íslands.
Bankaviðskipti á Íslandi
Þegar flutt er til nýs lands vegna atvinnu þarf oftast að opna bankareikning til þess að geta tekið við launagreiðslum. Hér eru upplýsingar um hvað þarf að hafa í huga þegar opna á bankareikning á Íslandi.
Heilbrigðiskerfi og sjúkratryggingar á Íslandi
Eitt það allra mikilvægasta þegar flutt er milli landa er að kynna sér almannatryggingarkerfið. Hér má finna almennar upplýsingar um almannatryggar, hvernig komast má hjá sex mánaða biðtíma inn í almannatryggingakerfið, upplýsingar um heilsugæslu og bráðaþjónustu í veikindum.
Ríkisborgararéttur og kosningaréttur á Íslandi
Þegar norrænir borgarar flytja innan Norðurlanda er engin krafa gerð um að sótt sé um ríkisfang í því landi sem flutt er til þótt mörg dæmi séu um að fólk óski þess. Hér má finna upplýsingar um íslenskan ríkisborgararétt og hvernig sótt er um hann, um tvöfalt ríkisfang sem og reglur um kosningarétt þeirra sem flytja innan Norðurlandanna.
Lífeyrisgreiðslur á Íslandi
Að ýmsu er að huga varðandi lífeyri þegar flutt er milli landa, til að mynda hvernig réttindin nýtast, hvernig sótt er um lífeyri og hvenær hann er greiddur út. Hér má finna almennar upplýsingar um lífeyrismál.
Tollareglur á Íslandi
Við flutning til Íslands með búslóð er vert að hafa nokkur atriði í huga. Búslóðir einstaklinga, til dæmis húsgögn, búsáhöld og persónulegir munir, eru tollfrjálsar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem brýnt er að kynna sér fyrir flutning. Hér má finna upplýsingar um búslóðaflutninga.
Kaup á vörum og þjónustu á Íslandi
Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi kaup á vörum og þjónustu á Íslandi.
Innflutningur á hundum og köttum til Íslands
Reglur um innflutning dýra til Íslands eru nokkuð strangar og mikilvægt er að huga snemma að undirbúningi flutnings. Hér má finna upplýsingar um að flytja dýr til Íslands.
Þjónusta við fatlaða á Íslandi
Norrænn samningur um almannatryggingar tekur á þjónustu við fatlaða sem vilja flytja til annars norræns lands. Hér má finna upplýsingar um samninginn, sem og hagnýtar upplýsingar fyrir fatlaða til dæmis um lyf, liðveislu, hjálpartæki og blindrahunda.
Við flutning frá Íslandi
Þegar flutt er frá Íslandi þarf að hafa ýmislegt í huga.
Gátlisti vegna flutnings frá Íslandi til hinna Norðurlandanna
Hugleiða þarf ýmis atriði við flutning frá Íslandi til einhvers af hinum Norðurlöndunum. Að neðan má finna lista yfir atriði sem gott er að muna eftir. Hafa ber þó í huga að listinn er ekki tæmandi og að misjafnt er hvaða atriði eiga við hvern og einn.
Flytja til Íslands með barn
Upplýsingar fyrir norrænar barnafjölskyldur sem flytja til Íslands.

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.

Flytja innan eða til Norðurlanda

Flytja til Danmerkur

Flytja til Finnland

Flytja til Íslands

Flytja til Noregs

Flytja til Svíþjóðar

Flytja til Álandseyja

Flytja til Færeyja

Meira um Ísland

Flytja til Íslands

Vinna á Íslandi

Nám á Íslandi