Document Actions

Bankaviðskipti á Íslandi

Þegar flutt er til nýs lands vegna atvinnu þarf oftast að opna bankareikning til þess að geta tekið við launagreiðslum. Hér eru upplýsingar um hvað þarf að hafa í huga þegar opna á bankareikning á Íslandi.

Landsbankinn
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt

Til að opna bankareikning í íslenskum banka þarf að hafa íslenska kennitölu. Hægt er að fá kennitölu hjá Þjóðskrá án þess að flytja lögheimili. Bankar óska yfirleitt eftir því að vegabréfi eða sambærilegum persónuskilríkjum sé framvísað.

Mismunandi er eftir bönkum hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem hyggjast opna bankareikning og eins hvort einstaklingar sem ekki eru með lögheimili á Íslandi geti opnað bankareikning.

Gjaldeyrishöft

Vert er að hafa í huga að gjaldeyrisviðskipti hafa verið háð takmörkunum frá hruni bankakerfisins haustið 2008 og því er mikilvægt að kynna sér þær reglur þegar flytja á fjármagn til og frá landinu. Hægt er að lesa nánar um það á heimasíðu Seðlabankans.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Þjóðskrá á Íslandi

    Brýnt er að kynna sér vel reglur um lögheimilisskráningu og útgáfu á kennitölum ef flytja á til annars norræns ríkis. Hér má finna upplýsingar um skráningu á Íslandi, hvort sem um lögheimilisbreytingu er að ræða eða skráningu vegna tímabundinnar dvalar á Íslandi.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.