Document Actions

Barnabætur á Íslandi

Barnafjölskyldur á Íslandi geta átt rétt á barnabótum en einnig annars konar stuðningi ef barnið þarf á sértækri aðstoð að halda. Einnig er veitt almenn aðstoð og niðurgreiðslur sem lesa má um hér.

Lek
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Greiðslur á barnabótum hefjast ári eftir að barn fæðist eða flytur til landsins en lýkur árið sem barnið verður 18 ára.

Ekki þarf að sækja um barnabætur, en þær eru tekjutengdar og ákvarðaðar í álagningu ár hvert. Þó er ákveðin upphæð vegna barna undir 7 ára aldri ekki tekjutengd.

Bæturnar eru greiddar út fjórum sinnum á ári, 1. febrúar og 1. maí eru greiddar út fyrirfram áætlaðar bætur og 1. ágúst og 1. nóvember er afgangurinn greiddur út, en heildarupphæð bótanna er ljós 1. ágúst.

Þeir foreldrar sem flytja með börn sín til annars norræns lands get átt rétt á barnabótum ári eftir flutninginn og þá hlutfallslega miðað við þann tíma sem þau voru búsett á Íslandi á tekjuárinu. Þar sem barnabætur eru greiddar út jafnóðum á hinum Norðurlöndunum geta foreldrarnir verið að fá bætur frá tveim löndum samtímis þó verið sé að greiða fyrir ólík tímabil.

Þetta leiðir til þess að foreldrar sem flytja til Íslands frá öðru norrænu landi, geta verið án barnabóta frá flutningsdegi til landsins og þar til í álagningu árið eftir er útborgun íslenskra barnabóta hefst. Nánari upplýsingar má finna á norræna skattavefnum Nordisk eTax.

Annars konar stuðningur við barnafjölskyldur

Auk barnabóta veitir Tryggingastofnun barnafjölskyldum aðstoð af ýmsu tagi. Aðstoð þessa má flokka í almenna aðstoð til foreldra vegna barna og sértæka aðstoð til foreldra ef börn glíma við ákveðna erfiðleika.

Almenna aðstoðin felst meðal annars í lægri greiðslum fyrir læknisþjónustu, meðlagi vegna barna, barnalífeyri, afsláttarkorti og niðurgreiðslu á tilteknum tannlækningum.

Með sértækri aðstoð er leitast við að koma foreldrum til aðstoðar ef barn glímir við alvarlega erfiðleika, fötlun, langvinn veikindi, þroskaraskanir eða hegðunarraskanir. Aðstoð Tryggingastofnunar getur falist í umönnunargreiðslum, umönnunarkorti, sjúkraþjálfun, talþjálfun, heimahjúkrun, ferðakostnaði, dvalarkostnaði, lyfjaskírteinum og hjálpartækjum. Ákveðnar reglur og skilyrði gilda um hvern þátt aðstoðar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Tryggingastofnunnar.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.