Fæðingarorlof á Íslandi
Það er afar mikilvægt að kynna sér vel reglur um fæðingarorlof ef flytja á milli landa á meðgöngu. Hér má finna upplýsingar um rétt til orlofs í tengslum við fæðingu barns, sem og reglur um sjúkradagpeninga á meðgöngu og foreldraorlof.
Fæðingarorlof skiptist almennt þannig að hvort foreldri á rétt á fæðingarorlofi í þrjá mánuði. Rétturinn er óframseljanlegur svo að annað foreldrið getur ekki látið rétt sinn ganga til hins. Auk þessa eiga foreldrar rétt á þremur mánuðum sem þeim er leyfilegt að skipta á milli sín.
Foreldrar geta hafið töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Þeir eiga ætíð rétt á að taka fæðingarorlofið í einu lagi en vinnuveitandi og starfsmaður gera samkomulag sín á milli um hvernig haga skuli fæðingarorlofinu. Þó er ekki heimilt að taka orlofið skemur en tvær vikur í senn. Samkvæmt lögum er móður skylt að vera í orlofi fyrstu tvær vikurnar eftir fæðingu barns og telst sá tími hluti af sjálfstæðum þriggja mánaða rétti móður.
Réttur til töku fæðingarorlofs fellur niður við 36 mánaða aldur barns. Sækja þarf um greiðslur í fæðingarorlofi til Fæðingarorlofssjóðs hjá Vinnumálastofnun. Skila þarf inn umsókn í síðasta lagi sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.
Flytji foreldri lögheimili sitt til annarra landa á meðan á fæðingarorlofsgreiðslum stendur hefur það ekki áhrif á greiðslur til foreldris þar sem um áunnin réttindi er að ræða. Þó er foreldri ekki heimilt að vinna á meðan á því tímabili stendur nema foreldri fresti töku fæðingarorlofs í samráði við Fæðingarorlofssjóð.
Nánari upplýsingar um fæðingarorlof má nálgast hjá Fæðingarorlofssjóði.
Foreldraorlof
Auk fæðingarorlofs á hvort foreldri um sig rétt á að taka launalaust leyfi sem kallast foreldraorlof í allt að 13 vikur fram að átta ára aldri barnsins. Foreldraorlofinu fylgja ekki greiðslur og foreldrar geta ekki framselt rétt til foreldraorlofs sín á milli.
Sjúkradagpeningar
Á meðgöngu eiga verðandi mæður rétt á sjúkradagpeningum frá Tryggingastofnun þegar réttur til veikindalauna samkvæmt kjarasamningum er fallinn niður, en þó að hámarki í 52 vikur. Fjárhæðin er hin sama fyrir alla.
