Fæðingarorlofsgreiðslur á Íslandi
Hér má finna upplýsingar um fæðingarorlofsgreiðslur til foreldra sem hafa verið á vinnumarkaði en einnig upplýsingar um fæðingarstyrk til námsmanna og þeirra sem hafa verið utan vinnumarkaðar.
Rétt til greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði eiga foreldrar sem hafa verið í samfelldu starfi í að minnsta kosti sex mánuði fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem foreldrið hefur töku fæðingarorlofs fyrir fæðingardag barns.
Foreldri sem hefur unnið í öðru EES landi hluta af fyrrnefndu sex mánaða tímabili getur flutt réttindi sín á milli landa ef viðkomandi byrjar að vinna á íslenskum vinnumarkaði minnst 10 dögum eftir heimkomu og vinnur að lágmarki í einn mánuð fyrir fæðingardag barns á Íslandi. Við útreikning greiðslna er þó eingöngu miðað við laun á innlendum vinnumarkaði.
Starfshlutfall í hverjum mánuði þarf að vera a.m.k. 25%. Greiðslur nema 80% af meðaltali heildarlauna foreldris upp að 200 þúsund krónum en 75% af þeim hluta launa sem eru hærri en 200 þúsund krónur.
Miðað er við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns. Greiðslur miðast þó alltaf við ákveðnar hámarks- og lágmarksupphæðir sem ákveðnar eru á hverjum tíma.
Réttur til fæðingarorlofs fellur niður við 36 mánaða aldur barns. Sækja þarf um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.
Fæðingarorlofsgreiðslur eru greiddar út í lok mánaðar fyrir undanfarandi mánuð í fæðingarorlofi.
Fæðingarstyrkur
Foreldrar sem eru utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfi geta átt rétt á fæðingarstyrk. Skilyrði fyrir greiðslu er að jafnaði að foreldri eigi lögheimili á Íslandi við fæðingu barns og síðustu tólf mánuði á undan. Réttur til fæðingarstyrks fellur niður við 18 mánaða aldur barns. Sækja skal um fæðingarstyrk í síðasta lagi þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barns.
Fæðingarstyrk námsmanna fá þeir foreldrar sem stunda fullt nám í 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Með fullu námi er átt við 75 -100% nám. Á háskólastigi þarf að meðaltali að ljúka minnst 22 ECTS einingum á önn en á framhaldskólastigi 13 einingum á önn.
Aðrar greiðslur
Takmarkanir eru á því hvers konar greiðslur má þiggja á sama tíma og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði fer fram. Þannig fara greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði ekki saman með atvinnuleysisbótum eða sjúkra- og slysadagpeningum sem greiddir eru vegna sama barns eða í tengslum við fæðingu þess. Þó er heimilt að þiggja styrk sem nemur allt að 20% af launafjárhæð aukalega meðan á fæðingarorlofi stendur án þess að til skerðingar á fæðingarorlofi komi.
Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar eða Tryggingastofnunnar.
