Framhaldsskólar á Íslandi
Á Íslandi eru reknir yfir þrjátíu framhaldsskólar víða um landið og fjölbreyttar námsleiðir eru í boði. Hér má finna almennar upplýsingar um skráningu í framhaldsskóla og uppbyggingu framhaldsskólanáms á Íslandi.
Framhaldsskólastigið tekur að öllu jöfnu til aldurshópsins 16-20 ára. Boðið er upp á margvíslegar námsbrautir í yfir 30 framhaldsskólum víðs vegar um landið. Skólaárið í íslenskum framhaldsskólum er níu mánuðir. Greitt er skráningargjald í framhaldsskólum, sem er mishátt eftir skólum. Nemendur greiða sjálfir fyrir skólabækur og annað námsefni.
Flestir taka stúdentspróf á fjórum árum en í ákveðnum skólum er mögulegt að hraða námi sínu og taka stúdentspróf á styttri tíma, allt niður í tvö ár. Mögulegt er að stunda nám til stúdentsprófs á ensku í einum framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu.
Í starfsmenntaskólum lýkur námi í iðngreinum yfirleitt með sveinsprófi, sem svo veitir inngöngu í iðnmeistaranám. Í flestum tilfellum er mögulegt að bæta við námseiningum og taka stúdentspróf. Margir framhaldsskólar bjóða einnig upp á styttri námsleiðir með beinni tengingu við atvinnulífið.
Skráning í nám á framhaldsskólastigi fer fram á netinu á menntagatt.is. Í sumum framhaldsskólum er mögulegt að skrá sig tvisvar á ári, á vorin og síðla árs, en í öðrum aðeins á vorin.
Á heimasíðu Mennta- og menningarmálaráðuneytisins má finna lista yfir alla framhaldsskóla á Íslandi.
