Grunnskólar á Íslandi
Öllum börnum og unglingum, að jafnaði á aldrinum 6 til 16 ára, er skylt að sækja grunnskóla. Hér má finna almennar upplýsingar um grunnskóla, meðal annars um skólaárið, skólafrí, skráningu og kennslu í íslensku fyrir nemendur af erlendum uppruna.
Skólaskylda á grunnskólastigi er að jafnaði í tíu ár, en getur verið skemmri, sbr. 32. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. Skólaárið er að jafnaði níu og hálfur mánuður frá síðustu viku ágústmánaðar til og með fyrstu viku júní. Í öllum skólum er jóla- og páskaleyfi og flestir skólar taka auk þess nokkra daga í vetrarfrí.
Þegar barn er skráð í grunnskóla er það gert á skrifstofu viðkomandi skóla. Upplýsingar um skólahverfi í Reykjavík er að finna á heimasíðu Mennta- og leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Fyrir grunnskóla í öðrum sveitarfélögum er best að snúa sér til viðkomandi skóla og/eða sveitarfélaga.
Nemendur með annað móðurmál en íslensku eiga rétt á stuðningi og sérkennslu í íslensku. Oft er miðað við tvo tíma á viku. Móttökudeildir fyrir nýbúa eru starfræktar í þremur grunnskólum í Reykjavík. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar má finna ýmsar upplýsingar um stefnu borgarinnar í þessum málum.
Boðið er upp á skóladagvist eftir að skóladegi lýkur fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Foreldrar greiða fyrir þjónustuna. Flestir skólar bjóða upp á máltíðir í hádegi gegn vægu gjaldi. Heilsugæsla í skólum er veitt án endurgjalds.
Lögð er áhersla á að allir nemendur fái nám við sitt hæfi í grunnskólanum. Nemendur sem eiga við náms-, félags- eða tilfinningalega erfiðleika og/eða fötlun eiga rétt á sérstökum stuðningi í námi.
Kennsla í erlendum tungumálum hefst með ensku í fimmta bekk og dönsku í sjöunda bekk. Nemendur með góðan grunn í sænsku eða norsku geta valið þau tungumál í stað dönskunnar með samþykki skólans. Flestir skólar bjóða upp á önnur tungumál sem valfag í 10. bekk. Námsmat skóla er fjölbreytt en margir nota einkunnakvarða á bilinu 1 – 10 þar sem 10 er hæst.
