Document Actions

Leikskólar og dagforeldrar á Íslandi

Leikskólar eru fyrsta skólastigið og ráðlagt er að kynna sér vel dagvistunarmál þegar flytja á til Íslands. Hér má finna upplýsingar um dagvistunarmöguleika fyrir börn, meðal annars um leikskóla og dagforeldra.

Dagis
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Á Íslandi sjá sveitarfélögin almennt um rekstur leikskóla og hafa umsjón með dagvistunartilboðum dagforeldra. Einkaskólar eru í boði, bæði á grunnskóla- og leikskólastigi, en reksturinn er yfirleitt styrktur af sveitarfélögunum að hluta.

Leikskólar eru ætlaðir börnum fram til sex ára aldurs að jafnaði. Þeir eru flestir reknir af sveitarfélögum en þó einnig af öðrum aðilum sem viðurkenndir eru af viðkomandi sveitarfélagi.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti setur leikskólum aðalnámskrá sem er endurskoðuð reglulega. Í henni koma fram helstu markmið leikskólastarfs og uppeldis- og menntunarhlutverk leikskóla, sbr. 2. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Sveitarfélög bera hins vegar ábyrgð á starfsemi leikskóla og kosta rekstur þeirra.

Í flestum sveitarfélögum er mögulegt að sækja um leikskólavist fyrir barn frá sex mánaða aldri en aðeins í undantekningartilfellum fá börn leikskólapláss fyrir átján mánaða aldur. Algengt er að börn dvelji hjá dagmæðrum þar til leikskólapláss fæst eða á sérstökum ungbarnaleikskólum þótt aðeins séu reknir fáir slíkir.

Almennt er gerð krafa um að börn séu skráð til heimilis í sveitarfélaginu þar sem leikskóli er en undantekningar eru á því.

Flestir leikskólar miða við að börn taki fjögurra vikna frí yfir sumartímabilið og margir leikskólar loka.

Nefndir á vegum sveitarstjórna veita leyfi til daggæslu barna í heimahúsum, en dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi og því ber að hafa samband beint við dagforeldrið til að sækja um dagvistunarpláss. Daggæslugjöld eru niðurgreidd af flestum sveitarfélögum. Niðurgreiðslur geta hafist að fæðingarorlofi  loknu og miðast við 9 mánaða aldur barna hjóna eða sambúðarfólks. Í mörgum sveitarfélögum er veittur systkinaafsláttur.

Í sumum sveitarfélögum eru veittar svokallaðar heimagreiðslur eða umönnunargreiðslur, ætlaðar foreldrum sem nýta ekki dagvistunartilboð fyrir börn undir sex ára aldri.

Nánari upplýsingar um leikskóla í Reykjavík má finna á síðu Reykjavíkurborgar. Utan höfuðborgarinnar er best að snúa sér til sveitarfélagsins.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Menntakerfið á Íslandi

    Hér má finna upplýsingar um íslenskt menntakerfi, allt frá leikskóla til háskóla auk fullorðinsfræðslu. Sérstaklega er fjallað um íslenskukennslu fyrir útlendinga og nám sem fer fram á ensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.