Document Actions

Meðlag á Íslandi

Hér má finna almennar upplýsingar um meðlagsgreiðslur á Íslandi og sérstakar upplýsingar fyrir umsækjendur um meðlag sem flytja til Íslands.

Skola
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Samkvæmt íslenskum lögum er barni tryggð lágmarksframfærsla. Sá aðlili sem stendur straum af framfærslu barnsins á rétt á meðlagi frá hinu meðlagsskylda foreldri að undangengnum úrskurði eða staðfestum samningi hjá sýslumanni.

Meðlagið tilheyrir barninu en framfærsluaðili tekur við greiðslu og notar til framfærslu barnsins. Meðlagið greiðist til 18 ára aldurs barns. Menntunarframlag greiðist í vissum tilvikum frá 18 til 20 ára aldurs barns og þá barninu sjálfu að undangenginni umsókn frá því. Meðlag með einu barni er kr. 21.657 á mánuði frá janúar 2009.

Meðlag telst ekki til bóta almannatrygginga heldur hefur Tryggingastofnun einungis milligöngu um greiðslu þess. Innheimtustofnun sveitafélaga sér svo um að innheimta greiðslur hjá meðlagsgreiðanda og endurgreiðir Tryggingastofnun. Foreldri sem fær úrskurð eða staðfest samkomulag um meðlag hjá sýslumanni getur snúið sér til þjónustumiðstöðvar Tryggingastofnunar eða umboða hennar utan Reykjavíkur vegna umsóknar um meðlag.

Flytji umsækjandi um meðlag til Íslands þarf að leggja fram umsókn um fyrirframgreiðslu meðlags til TR auk staðfestingar um greiðslur frá fyrra búsetulandi ásamt meðlagsákvörðun sem greiðslurnar byggðust á.

Flytji móttakandi meðlagsgreiðslna frá Íslandi skal hann tilkynna það til Tryggingastofnunar og taka með sér gögn þaðan ásamt tilkynningu um stöðvun greiðslna hér á landi til framvísunar í hinu nýja. Allflest ríki innan EES greiða meðlag fyrirfram.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.