Document Actions

Heilbrigðiskerfi og sjúkratryggingar á Íslandi

Eitt það allra mikilvægasta þegar flutt er milli landa er að kynna sér almannatryggingarkerfið. Hér má finna almennar upplýsingar um almannatryggar, hvernig komast má hjá sex mánaða biðtíma inn í almannatryggingakerfið, upplýsingar um heilsugæslu og bráðaþjónustu í veikindum.

Kroppen
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Almannatryggingar

Tryggingastofnun sér um almannatryggingar á Íslandi. Aðalskrifstofur og þjónustumiðstöð stofnunarinnar eru í Reykjavík en utan Reykjavíkur eru sýslumenn umboðsmenn stofnunarinnar og sjá um framkvæmd almannatrygginga. Almannatryggingakerfið skiptist í lífeyris-, slysa- og sjúkratryggingar. Almannatryggingar ná til þeirra sem eiga lögheimili á Íslandi.

Þeir sem hafa verið búsettir á Norðurlöndunum og Íslendingar sem hafa búið erlendis eiga rétt á aðstoð frá Tryggingastofnun eftir 6 mánaða fasta búsetu á  Íslandi. Hafi þeir verið sjúkratryggðir í öðru norrænu ríki eða öðru aðildarlandi Evrópska efnahagssvæðisins (Evrópusambandslöndin, Lichtenstein, Noregur og Ísland eiga að aðild að EEs) síðustu 6 mánuði og leggja fram staðfestingu N-104/E-104, öðlast þeir sjúkratryggingu strax. Börn og unglingar, 18 ára og yngri, eru sjúkratryggð með foreldrum sínum og eins stjúpbörn og fósturbörn. Nánari upplýsingar um almannatryggingar fást hjá Tryggingastofnun.

Heilsugæsla

Almenn heilsugæsla, hvort sem er hjá heimilislæknum eða sérfræðingum, er yfirleitt niðurgreidd af Tryggingastofnun ríkisins. Oftast þarf þó að borga komugjald við komuna á heilsugæslustöð.

Þeim sem eru sjúkratryggðir er í flestum tilvikum tryggð ókeypis vist að ráði læknis á sjúkrahúsi, þar með talið á fæðingarstofnunum. Vistin er tryggð eins lengi og nauðsyn krefur, ásamt læknishjálp, lyfjum og annarri þjónustu sem sjúkrahúsið veitir.

Til þess að fá heimilislækni, ber fólki að hafa samband við heilsugæslustöð síns sveitarfélags eða hverfis. Á heilsugæslustöðvum fara meðal annars fram almennar læknisskoðanir, bólusetningar og ungbarnaeftirlit. Ef langur biðlisti er eftir heimilislækni er jafnan mögulegt að panta almennan tíma á heislugæslustöð. Á heimasíðu Landlæknisembættisins má finna lista yfir allar heilsugæslustöðvar á landinu.

Utan almenns afgreiðslutíma heilsugæslustöðva er mögulegt að leita til Læknavaktar sem sinnir höfuðborgarsvæðinu. Utan höfuðborgarsvæðisins er yfirleitt læknir á vakt sem mögulegt er að ná í eftir afgreiðslutíma heilsugæslustöðva. Ráðlagt er að kanna hvernig málum er háttað í sveitarfélaginu sem búið er í. Við slys eða bráðaveikindi er haft samband við Neyðarlínuna, í símanúmeri 112.

Tengt efni

 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.