Document Actions

Kaup á vörum og þjónustu á Íslandi

Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar varðandi kaup á vörum og þjónustu á Íslandi.

Konsument
Ljósmyndari
Johannes Jansson/Norden.org

Við búsetu á Íslandi í lengri eða skemmri tíma er nauðsynlegt að vera með íslenska kennitölu. Hún er meðal annars notuð þegar skrifað er undir þjónustusamninga við fyrirtæki, til dæmis símafyrirtæki, við opnun bankareiknings, umsókn um bókasafnsskírteini og jafnvel þegar leigð er mynd á myndbandaleigu. Kennitala fæst með því að skrá aðsetur eða lögheimili hjá Þjóðskrá.

Rétt er að hafa í huga að Ísland tilheyrir ekki Evrópusambandinu og því er ekki tollfrelsi milli Evrópulanda og Íslands. Þannig þarf til að mynda að greiða toll af vörum sem keyptar eru frá Norðurlöndum.

Unnt er að kaupa símakort fyrir farsíma sem er með inneign sem hlaðin er handvirkt. Ekki þarf kennitölu fyrir þá tegund símakorta.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.