Document Actions

Lífeyrisgreiðslur á Íslandi

Að ýmsu er að huga varðandi lífeyri þegar flutt er milli landa, til að mynda hvernig réttindin nýtast, hvernig sótt er um lífeyri og hvenær hann er greiddur út. Hér má finna almennar upplýsingar um lífeyrismál.

Eldre
Ljósmyndari
Karen Beate Nøsterud - norden.org

Þeir sem eru 67 ára og hafa búið og starfað á Íslandi í tilskilinn tíma eiga mögulega rétt á ellilífeyri. Jafnframt geta eldri borgarar átt rétt á ýmsum styrkjum og uppbótum.

Einstaklingar sem hafa náð  ellilífeyrisaldri og hafa búið á Íslandi í minnst þrjú ár á aldrinum 16-67 ára geta átt rétt á greiðslu ellilífeyris.

Þeir sem hefja töku ellilífeyris geta í mörgum tilvikum einnig átt rétt á greiðslum úr einum eða fleiri lífeyrissjóðum en sækja þarf um þær greiðslur hjá viðeigandi sjóðum.

Verðandi ellilífeyrisþegar fá sent bréf frá Tryggingastofnun um mögulegan rétt til ellilífeyris. Bréfinu fylgja eyðublöð fyrir umsóknir og tekjuáætlanir sem fylla þarf út og senda til Tryggingastofnunar eða umboða utan Reykjavíkur.

Hafi ellilífeyrisþegi starfað í öðru norrænu ríki hefur Tryggingastofnun milligöngu um að sækja réttindi fyrir lífeyrisþega.

Það getur borgað sig fyrir þá sem halda áfram vinnu eftir 67 ára aldur að fresta umsókn um ellilífeyri. Ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót hækka um 0,5% fyrir hvern mánuð fram til 72 ára aldurs, eða að hámarki um 30%. Nánari upplýsingar um lífeyrisgreiðslur má fá á heimasíðu Tryggingastofnunar. Upplýsingar um skattlagningu lífeyrisgreiðslna má finna á heimasíðu Nordisk eTax.

Tengt efni
  • Norrænn sáttmáli um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu (Agreement)

    Norrænn sáttmáli um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu, samþykktur 14. júní 1994.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Samkomulag um samræmingu lífeyrisréttinda (Agreement)

    Samkomulag milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um samræmingu lífeyrisréttinda samkvæmt lífeyrisreglum ríkisstarfsmanna. Undirritaður 1. júní 2001 og tók gildi 1. mars 2002.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.