Stéttarfélög á Íslandi
Stéttarfélög gegna mikilvægu hlutverki á Íslandi og nær allt launafólk er félagsmenn í stéttarfélögum. Ráðlagt er að kynna sér vel starfsemi stéttarfélaga og þá aðstoð sem þau veita.
Hlutverk stéttarfélaga er fyrst og fremst að semja um laun og önnur starfskjör í kjarasamningum fyrir hönd félagsmanna sinna og gæta hagsmuna þeirra á vinnumarkaði.
Langflest stéttarfélög starfrækja sjóði sem gagnast félagsmönnum, s.s sjúkrasjóði í veikindum, orlofssjóði og fræðslusjóði. Þá bjóða stéttarfélög félagsmönnum sínum upp á lögfræðiþjónustu vegna m.a. ágreinings við atvinnurekendur.
Nær allt launafólk á Íslandi er félagsmenn í stéttafélögum en þó er heimilt að standa utan stéttarfélaga en þeim sem það kjósa er eftir sem áður skylt að vinna eftir lögbundnum kjarasamningum og greiða til stéttarfélaganna.
Stéttarfélög mynda flest með sér stærri sambönd eftir atvinnugreinum og landshlutum. Þessi stéttarfélagasambönd eru í einhverju af fjórum heildarsamtökum launafólks: ASÍ, BSRB, BHM og KÍ. Einnig stendur nokkur fjöldi stéttarfélaga utan þessara bandalaga.
- ASÍ, Alþýðusamband Íslands: stærstu hagsmunasamtök launafólks á Íslandi, 2/3 launamanna í skipulögðum samtökum eru í ASÍ. (alls 108.000 manns)
- BSRB, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja: Stærstu samtök opinberra starfsmanna á Íslandi. (alls um 20.000 manns).
- BHM, Bandalag háskólamanna: eru samtök 25 stéttarfélaga háskólamenntaðra. (alls 8.500 manns).
- KÍ, Kennarasamband Íslands: stéttarfélag kennara og stjórnenda í skólum, hefur alls átta aðildafélög. (alls 10.000).
Heildarfjöldi því í þessum fjórum stærstu samtökum er 146.500 manns – en Íslendingar eru alls 318.452 (1. janúar 2011).
