Document Actions

Þjóðskrá á Íslandi

Brýnt er að kynna sér vel reglur um lögheimilisskráningu og útgáfu á kennitölum ef flytja á til annars norræns ríkis. Hér má finna upplýsingar um skráningu á Íslandi, hvort sem um lögheimilisbreytingu er að ræða eða skráningu vegna tímabundinnar dvalar á Íslandi.

Människor
Ljósmyndari
Image select

Fyrir þá sem flytja til Íslands frá öðru norrænu landi gildir norrænn samningur um almannaskráningar milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar. Samningurinn kveður á um að aðeins sé hægt að vera skráður til heimilis á einum stað á Norðurlöndum. Reglur þess lands sem flutt er til ráða til um það hvernig skráningu er háttað.

Á Íslandi sér Þjóðskrá um skráningu lögheimila og útgáfu á kennitölum. Norrænir ríkisborgarar sem ætla að búa og starfa á Íslandi skemur en sex mánuði þurfa að öllu jöfnu ekki að flytja lögheimili sitt til landsins. Hafi þeir þörf fyrir kennitölu til dæmis vegna náms eða atvinnu, geta þeir sótt um að fá úthlutað kennitölu án þess að skrá lögheimili á Íslandi.

Þeir sem flytja til Íslands frá einhverju Norðurlandanna og búa og starfa á Íslandi lengur en 6 mánuði, eru skyldugir til að flytja lögheimili sitt til landsins. Það er gert með því að fara annaðhvort til Þjóðskrár eða á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags og tilkynna flutning. Framvísa þarf persónuskilríkjum við skráninguna.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Þjóðskrár.

Tengt efni

 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.