Tollareglur á Íslandi
Við flutning til Íslands með búslóð er vert að hafa nokkur atriði í huga. Búslóðir einstaklinga, til dæmis húsgögn, búsáhöld og persónulegir munir, eru tollfrjálsar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum sem brýnt er að kynna sér fyrir flutning. Hér má finna upplýsingar um búslóðaflutninga.
Til að tollfrelsi gildi þarf sá sem flytur til Íslands að hafa búið erlendis í að minnsta kosti tólf mánuði. Búslóðarmunirnir þurfa að vera notaðir og hafa verið í eigu viðkomandi í minnst eitt ár. Eins má ekki líða lengri tími en sex mánuðir frá því að einstaklingur flytur búferlum þar til búslóðin er flutt til landsins.
Við tollafgreiðslu búslóðar kann að vera óskað eftir því að sá/sú sem flytur inn búslóð sýni fram á að skilyrðum fyrir tollfrelsi sé fullnægt. Þannig er mögulegt að þess sé krafist að sýnt sé fram á búsetu erlendis í tilskilinn tíma, en vottorð þess efnis má fá hjá Þjóðskrá. Eins er stundum óskað eftir vottorði skólastofnunar eða vinnustaðar erlendis.
Hafa ber í huga að ákveðnar vörur eru háðar sérstökum innflutningsskilyrðum, til dæmis er innflutningur skotvopna háður leyfi lögreglustjóra og eins gilda sérstakar reglur um innflutning dýra og ökutækja.
Nánari upplýsingar fást hjá Tollstjóraembætinnu.
