Við flutning frá Íslandi
Þegar flutt er frá Íslandi þarf að hafa ýmislegt í huga.
Það borgar sig fyrir þá sem fá greiðslur úr almannatryggingum, til að mynda örorkubætur eða ellilífeyri, að hafa samband við Tryggingastofnun ríkisins. Nauðsynlegt er að huga að skattaskýrslu en upplýsingar um slíkt má fá hjá Ríkisskattstjóra.
Ráðlagt er fyrir þá sem hafa starfað á Íslandi að hafa samband við Vinnumálastofnun minnst þremur vikum fyrir flutning til að kynna sér réttindi sín og jafnvel sækja um vottorðið E-301, sem styttir biðina eftir atvinnuleysisbótum við atvinnumissi. Til þess að geta fengið vottorðið þarf að leggja fram vinnuvottorð frá vinnuveitendum síðastliðinna þriggja ára. Einnig er skynsamlegt að ræða við verkalýðsfélagið sitt um að fá hjá þeim vottorð sem sýna áunnin réttindi. Atvinnulausum gæti verið hagur í að kynna sér vottorðið E-303 hjá Vinnumálastofnun.
Ráðlagt er að hafa samband við banka, tryggingarfélag og aðrar stofnanir sem hver og einn hefur skuldbindingu við. Einnig getur verið mikilvægt að fá vottorð og skjöl frá skólum barna eða öðrum menntastofnunum, hjónavígslu- og fæðingarvottorð og heilsufarsbók barna svo að eitthvað sé nefnt. Barnshafandi konur ættu að kynna sér vel réttindi varðandi fæðingarorlof.
