Document Actions

Að flytja eða ferðast til Svalbarða

Í þessum kafla eru upplýsingar um Svalbarða. Svalbarði er hluti af norska konungsríkinu, engu að síður gilda aðrar reglur þar en annars staðar í landinu. Að neðan eru upplýsingar um ýmsar reglur sem taka þarf tillit til við ferðalög, dvöl eða flutninga til Svalbarða.

Island
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Svalbarði er hluti af konungsríkinu Noregi, en ekki gilda öll sömu lög þar og annars staðar í Noregi. Til dæmis á Svalbarði ekki aðild að Schengen-samstarfinu eða EES-samningnum, og gerð er krafa um að einstaklingur geti séð fyrir sér á meðan dvalið er þar. Norræni sáttmálinn um almannatryggingar gildir þó á eyjunni í norðri.

Þar sem Schengen-samningurinn krefst þess að vegabréfaeftirlit sé milli Schengen-ríkja og þeirra sem ekki eru aðilar að samningnum, verða allir sem ferðast til og frá Svalbarða að bera vegabréf eða önnur persónuskilríki. Nánar um þetta á vefsíðu norsku ríkisstjórnarinnar.

Dvöl, félagsþjónusta, réttindi og skyldur

Svalbarði hefur sérstaka þjóðréttarlega stöðu í gegnum Svalbarðasamninginn. Útlendingalögin gilda ekki á Svalbarða. Það hefur í för með sér að borgarar allra landa sem hafa undirritað samninginn eiga jafnan rétt á aðgangi að og dvöl á Svalbarða. Með öðrum orðum á Svalbarði ekki aðild að Schengen-samstarfinu, en útlendingar þurfa samt ekki vegabréfsáritun, vinnu- eða dvalarleyfi til þess að dveljast á Svalbarða. Aftur á móti þarf vegabréfsáritun til Schengen þegar ferðast er frá Svalbarða með viðkomu á meginlandi Noregs.

Að auki eru gerðar kröfur um að einstaklingar eigi nægilegt fjármagn til þess að dveljast á Svalbarða. Ef sú er ekki raunin getur sýslumaður vísað einstaklingum burt sem ekki uppfylla kröfurnar, hvort sem þeir eru norskir eða erlendir ríkisborgarar. Lög um félagsþjónustu gilda því ekki á Svalbarða, sem hefur í för með sér að íbúar eiga ekki rétt á fjárhagsaðstoð til uppihalds eða húsnæðis, íbúar eiga heldur ekki rétt á sérstakri aðstoð vegna sjúkdóms, skertrar starfshæfni eða aldurs.

Þar sem norsku útlendingalögin gilda ekki á Svalbarða ávinna menn sér ekki rétt til norsks ríkisborgararétts eða vinnu- eða dvalarleyfis annars staðar í Noregi þó þeir búi á Svalbarða í mörg ár.

Hvað norræna ríkisborgara varðar telst tímabundin svöl á Svalbarða vera dvöl í Noregi ef viðkomandi hyggst sækja um ríkisborgararétt. Nánar á vefsíðum UDI.

Til þess að fá félagsgreiðslur frá NAV á Svalbarða þarf viðkomandi að vera aðili að norsku almannatryggingunum. Ef einstaklingur vinnur fyrir norskan vinnuveitanda á Svalbarða öðlast hann aðild að almannatryggingakerfinu, aðildinni lýkur mánuði eftir að starfstíma lýkur. Norrænn sáttmáli um almannatryggingar gildir á Svalbarða og veitir norrænum ríkisborgurum og öðrum sem hafa áunnið sér réttindi í norrænu ríkjunum réttindi til bótagreiðslna.

Við innlögn á sjúkrahúsið á Svalbarða verða erlendir borgarar að geta framvísað vegabréfi og heilbrigðsistryggingakorti, ef viðkomandi er ekki með tryggingakort verður hann að hafa tryggingu eða greiða fyrir dvölina sjálfur.

Atvinna og húsnæði  

Erfitt getur reynst að fá vinnu á Svalbarða og er því mælt með því að festa sér starf áður en lagt er af stað. Fylgist með á vefsíðu NAV um lausar stöður, en þar eru upplýsingar á norsku um lausar stöður. Flestar íbúðir eru í eigu vinnuveitenda á Svalbarða og fylgja oft starfi. Því getur reynst erfitt að finna húsnæði ef viðkomandi er ekki í vinnu.

Nám

Á Svalbarða er háskólasetur (UNIS), þar sem stunduð er kennsla og rannsóknir í líffræði heimskautasvæðisins, jarðfræði, jarðeðlisfræði og tæknifræði. UNIS er ekki sjálfstæður háskóli, heldur sérhæfingarstofnun fyrir námsmenn sem þegar hafa stundað nám við annan háskóla í Noregi eða erlendis. Vinnutungumál UNIS er enska og þar er boðið upp á námskeið á bachelor-, meistara- og doktorsstigi. Nánar á vefsíðu háskólans.

Þjóðskrá

Einstaklingar sem hyggjast setjast að á Svalbarða verða að skrá sig í þjóðskrá eyjaklasans. Það skal gera innan 8 daga frá komu. Á skattstofu skal tilkynna ef:

  • Viðkomandi flytur til Svalbarða og hyggst dvelja þar í a.m.k. 6 mánuði
  • Viðkomandi flytur innan Svalbarða og dvelur/hefur dvalið í a.m.k. 6 mánuði
  • Viðkomandi flytur frá Svalbarða

Þeir sem eru skráðir á Svalbarða fá ákveðin réttindi sem tengjast veiðum, byssuleyfi, áfengiskorti og heilbrigðisþjónustu. Þó einstaklingur sé skráður á Svalbarða er ekki litið svo á að hann sé búsettur í Noregi og því er mikilvægt að athuga í heimalandinu hvaða réttindi og skyldur viðkomandi hefur þegar hann sest að á Svalbarða.

Skattur

Á Svalbarða gilda sérstök skattalög sem fela í sér að allir skatta sem greiddir eru í eyjaklasanum eru notaðir þar. Löggjöfin skiptist í tvennt.

  1. Einstaklingar sem starfa á Svalbarða skemur en eitt ár skulu greiða skatta af tekjum fyrir vinnu sem unnin er á Svalbarða. Forsendan er þó að viðkomandi dvelji samfleytt á Svalbarða í 30 daga á hverju einstöku starfstímabili. Ef viðkomandi fer frá Svalbarða áður en 30 dagar eru liðnir, eru laun fyrir það tímabil skattskyld í heimalandinu.
  2. Tekjur og eignir einstaklinga sem búa á Svalbarða í að lágmarki í 12 mánuði eru skattskyldar á Svalbarða.

Nánar um skattareglur á vefsíðu Skattstjóra

Aðrar nytsamlegar vefsíður:

Vefsíður sýslumannsins
Vefsíður UDI um réttindi í Noregi eftir dvöl á Svalbarða
Dagblaðið á Svalbarða, Svalbardposten

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.