Document Actions

Að flytja frá Noregi til útlanda

Að hverju þarf að hyggja þegar flutt er frá Noregi til útlanda? Eftirfarandi eru upplýsingar fyrir einstaklinga sem hyggjast flytja frá Noregi til annars lands.

De nordiska flaggorna
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Ef einstaklingur hefur unnið sér inn bótarétt í Noregi og hyggst flytja til annars EES-ríkis eða annars norræns ríkis, er oft hægt að flytja þessi réttindi með sér. Í sumum tilvikum þýðir það að hægt er að bæta þessum réttindum við þau réttindi sem viðkomandi vinnur sér inn í því landi sem flutt er til, samkvæmt samlagningarákvæðum. Athugið samt að ekki er hægt að flytja áunnin réttindi til bóta sem ekki eru til í því landi sem flutt er til.

Í öðrum tilvikum er hægt að fá bæturnar greiddar frá Noregi. Í langflestum tilvikum þarf að sækja um að fá bæturnar greiddar frá Noregi áður en flutt er. Nánari upplýsingar um að flytja með sér áunnin bótaréttindi eru í köflunum um dagpeninga, sjúkradagpeninga, foreldragreiðslur og eftirlaun.

Aðild að almannatryggingakerfinu (Folketrygden)

Athugið aðild að almannatryggingakerfinu (Folketrygden). Þegar unnið er í útlöndum fellur aðild að norska almannatryggingakerfinu oftast nær niður. Ef viðkomandi er ekki aðili að því

  • greiðir hann ekki tryggingagjaldið
  • greiðir almannatryggingakerfið ekki kostnað við læknisþjónustu erlendis
  • ávinnur hann sér ekki eftirlaunaréttindi/eftirlaunastig eftir lögum um almannatryggingar á því tímabili sem dvalið er í útlöndum
  • fær hann ekki sjálfkrafa rétt á bótagreiðslum

Nánari upplýsingar um frjálsa aðild á NAV sine sider.

Skattalegur flutningur

Einstaklingur telst hafa flutt skattalega heimilisfestu frá Noregi ef hann er með fasta búsetu í öðru landi. Tímabundin dvöl í útlöndum flytur ekki skattalega heimilisfestu frá Noregi.

Reglur um skattalega heimilisfestu við brottflutning gilda fyrir:

  • einstaklinga sem voru búsettir í Noregi þann 31.desember 2003, og
  • einstaklinga sem fengu skattalega heimilisfestu í Noregi árið 2004 eða seinna.

Ef flytja á skattalega heimilisfestu frá Noregi skal sanna

  • að viðkomandi hafi fasta búsetu í útlöndum
  • að viðkomandi hafi ekki dvalið í Noregi í meira en 61 dag á tekjuárinu, og
  • að viðkomandi eða nákomnir (maki, sambýlingur, barn undir lögaldri) ráði ekki yfir íbúðarhúsnæði í Noregi.

Hvenær skattaleg heimilisfesti rennur út í Noregi ræðst af því hversu lengi viðkomandi hefur búið í Noregi áður en flutt er. Nánari upplýsingar á norrænu skattagáttinni Nordisk eTax. Reikna skal með að senda þurfi skattskýrslu til Noregs í þrjú ár eftir brottflutning.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.