Document Actions

Bankareikningur í Noregi

Hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að geta stofnað bankareikning í Noregi? Nauðsynlegt er að hafa norska kennitölu eða D-tölu. Eftirfarandi eru upplýsingar um stofnun bankareiknings í Noregi.

Ekonomi
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Til þess að stofna bankareikning í Noregi þarf norska kennitölu (personnummer) eða D-tölu. Ef ætlunin er að dvelja lengur en 6 mánuði í Noregi þarf venjulega að skrá sig í þjóðskrá og þegar það er gert fær viðkomandi kennitölu.

Ef áætlað er að dvelja skemur en 6 mánuði í Noregi getur viðkomandi fengið D-tölu. Bankinn getur sótt um D-tölu fyrir hönd viðskiptavina sinna. Sumir bankar fara fram á að viðskiptavinir þeirra séu með lögheimili í Noregi.

Munið að hafa vegabréf meðferðis þegar stofna á bankareikning í Noregi. Sumar bankastofnanir samþykkja einnig nýrri tegundir af norrænum ökuskírteinum sem uppfylla EES-kröfur. Þegar gefið er út bankakort með mynd er yfirleitt alltaf farið fram á að fólk framvísi vegabréfi. Þá þykir sumum bönkum æskilegt, þótt þess sé ekki beinlínis krafist, að nýir viðskiptavinir taki með sér meðmælabréf frá gamla bankanum sínum.

Nokkrar bankastofnanir eru með útibú í öðrum norrænum ríkjum. Í sumum tilvikum geta núverandi viðskiptavinir stofnað bankareikning í öðru norrænu ríki með aðstoð bankans í heimalandinu.

Bankarnir fara yfirleitt fram á að viðskiptavinir séu á þjóðskrá í Noregi þegar þeir biðja um Mastercard, Visa-kort eða yfirdráttarheimild. Yfirlit yfir þá þjónustu sem norskar bankastofnanir bjóða er á vefsíðu Fjármálagáttarinnar.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.