Bifreiðar til og frá Noregi
Ekki er leyfilegt að flytja vélknúin farartæki með búslóðinni til Noregs án þess að greiða tolla af þeim. Í flestum tilfellum þarf að greiða gjöld af farartækjum og skrá þau í Noregi. Ef viðkomandi er búsettur erlendis getur hann í ákveðnum tilfellum notað bifreið sem skráð er þar í Noregi. Að neðan eru ýmsar reglur um innflutning farartækja til Noregs og hvert skal snúa sér.
Innflutningur bifreiða sem skráðar eru erlendis til Noregs
Ekki er leyfilegt að flytja vélknúin farartæki með búslóðinni til Noregs án þess að greiða tolla af þeim. Í flestum tilfellum þarf að greiða gjöld af farartækjum og skrá þau í Noregi. Nánari upplýsingar um tollafgreiðslu farartækja og kostnað eru á vefsíðu tollstjóra.
Áður en farartæki eru flutt inn er mikilvægt að afla upplýsingar hjá norsku vegagerðinni um hvaða tæknikröfur eru gerðar til faratækisins áður en það fær norsk skráningarmerki.
Einnig er mikilvægt að kanna útflutningsreglur hjá yfirvöldum í innkaupslandinu/útflutningslandinu.
Þegar komið er að norskum landamærum er mikilvægt að fara í gegnum vaktað hlið og gera vart við sig á rauðu svæði. Þar fær viðkomandi innflutningsvottorð hjá tollayfirvöldum þar sem meðal annars kemur fram að hann skuli tilkynna sig hjá tollayfirvöldum á áfangastað. Þar greiðir viðkomandi virðisaukaskatt og mögulega gjald vegna losunar gróðushúsalofttegunda. Erlend skráningarnúmer eru afhent tollayfirvöldum þegar virðisaukaskattur er greiddur.
Mikilvægt er að kaupa dagsnúmer hjá vegagerðinni áður en ekið er af stað á áfangastað. Hafa skal meðferðis staðfestingu á stellnúmeri ökutækis þannig að vegagerðin geti gefið út dagsnúmer.
Leggja skal fram eftirfarandi skjöl:
- innflutningsvottorðið
- reikning eða kaupsamning sem sýnir raunverulegt kaupverð ásamt flutningsreikningi ef við á og skjöl sem sýna annan kostnað við að flytja ökutækið yfir landamæri Noregs, (t.d. tryggingu).
- upprunalegt erlent skráningarskírteini, mögulegt skírteini um að ökutæki uppfylli staðla (COC). Þegar nýir bílar eru fluttir inn og COC er lagt fram, er í flestum tilfellum hægt að greiða tollinn um leið og virðisaukaskattinn.
Vegagerðin verður að samþykkja notuð ökutæki. Það er gert við skoðunarstöðvar á vegum hennar. Skilyrt er að vegagerðin samþykki ökutæki áður en tollayfirvöld reikna tolluog skilagjald.
Virðisaukaskatt skal greiða áður en vegagerðin samþykkir ökutækið.
Einnig þarf að greiða toll áður en ökutæki er skráð í Noregi. Hafa skal samband við tollskrifstofu til þess að láta reikna toll og úrvinnslugjald. Tollayfirvöld staðfesta á skráningarskírteininu (euðublað NA-0221) að gjöldin hafi verið greidd. Hafa skal skráningarskírteinið meðferðis þegar bifreiðin er skráð hjá vegagerðinni.
Áður en ökutæki er tekið í notkun skal láta samþykkja það og skrá hjá enni af skoðunarstöðvum vegagerðarinnar eða í gegnum Autoreg hjá bílasala sem hefur aðgang að kerfinu. Hægt er að panta tíma hjá flestum skoðunarstöðvum til þess að skrá ökutækið.
Þegar skráning fer fram skal hafa meðferðis beiðni um útreikning gjalda og skráningu (eyðublað NA-0221), skilríki og tryggingaskírteini. Nánar á vefsíðu vegagerðar ríkisins. Að skráningu lokinni fær viðkomandi senda kröfu um greiðslu árgjalds frá tollayfirvöldum.
Hægt er að hafa samband við upplýsingamiðstöð tollstjóra í síma 03012 og fá nánari upplýsingar um innflutning og útreikning gjalda. einnig eru nánari upplýsingar á vefsetri tollstjóra og vefsíðu vegagerðar ríkisins.
Fólk sem býr tímabundið í Noregi
Reglur um gjaldfrjálsan innflutning og tímabundna notkun eru í reglugerð um gjaldfrjálsan innflutning og tímabundna notkun farartækja sem skráð eru erlendis í Noregi. Reglugerðin nær einnig til tengivagna og hjólhýsa.
Ef viðkomandi er búsettur erlendis getur hann í ákveðnum tilfellum notað ökutæki sem skráð er þar í Noregi. Það á við um þá sem starfa tímabundið í Noregi, en einnig um þá sem ferðast til vinnu í Noregi en eru búsettir erlendis.
Ef einstaklingur hefur í hyggju að dvelja allt að eitt ár í Noregi er hægt að flytja ökutækið inn án þess að greiða gjöld af því og nota það tímabundið með erlendum skráningarmerkjum. Mikilvægt er að viðkomandi geti skjalfest að dvölin verði ekki lengri en eitt ár og að staðfesting þess efnis sé geymd í ökutækinu. Dæmi um slíka staðfestingu getur verið samningur um starf í Noregi, staðfesting á leyfi frá starfi erlendis eða staðfesting á námi í Noregi.
Ef dvölin lengist þannig að búsetutími í Noregi verður allt að tveimur árum, þarf viðkomandi að sækja um ökuleyfi fyrir bifreiðina áður en ár er liðið af dvölinni. Umsóknin sendist til tollstjóra. Einnig er mikilvægt að upplýsa tollayfirvöld ef breytingar verða á starfi á árinu. Upplýsingar um hvernig hafa má samband við tollstjóra eru á vefsetri tollstjóra.
Aðilar sem ferðast til vinnu yfir landamæri
Einstaklingar sem ferðast til vinnu milli Noregs og annras ríkis geta í vissum tilvikum notað farartæki í Noregi sem skráð er í öðru landi. Þá er annað hvort farið fram á að einstaklingurinn ferðis á milli daglega eða dveljist erlendis í að minnsta kosti 185 daga á 12 mánaða tímabili. Hann má ekki hafa norskt lögheimili, né heldur maki hans og börn undir 18 ára aldri.
Vetrardekk og sumardekk
Í Noregi bera ökumenn sjálfir ábyrgð á því að meta hvort ökutækið hafi nægilegt veggrip. Í hálku fæst betra veggrip ef notuð eru vetrardekk með eða án nagla eða keðja.
Notkun negldra vetrardekkja er háð reglum og ekki leyfileg
- Frá og með fyrsta mánudegi eftir 2. páskadag
- Til og með 31. október
Í Nordland, Troms og Finnmörku gilda reglurnar frá og með 1. maí til og með október.
Yfir vetrartímann eru eftirfarandi kröfur gerðar til þeirra dekkja sem notuð eru:
- Dýpt mynstursins skal vera 3 mm að lágmarki óháð dekkjagerð (sumardekk með minna en 3 mm djúpt mynstur skal ekki nota í vetrarfærð)
- Naglar eru einungis leyfðir á vetrardekkjum (nema á mótórhjólum)
- Ökutæki sem vega 3,5 tonn og minna og nota nagladekk, verða að vera með þau á öllum hjólum
Utan vetrartíma skal dýpt mynsturs vera að lágmarki 1,6 mm.
Ekki er gerð krafa um notkun nagladekkja á veturna, og notkun vetrardekkja án nagla er ekki háð eftirliti, en slík dekk hafa minna veggrip en sumardekk á blautu malbiki að sumarlagi.
Ef færðin krefst þess má nota nagladekk og keðjur utan vetrartíma. Enn fremur er ekki gerð krafa um að notuð séu nagladekk á veturna í tveimur stærstu borgunum, Ósló og Björgvin hafa lagt nagladekkjaskatt á bifreiðar sem nota nagladekk milli 1. nóvember og 1. maí. Nánar um gjöldin á vefsíðu vegagerðar ríkisins.
Athugið að sumir vegi í Noregi eru lokaðir á veturna. Nánari upplýsingar um þetta á vefsíðu vegagerðar ríkisins.
Akstur bifreiðar sem skráð er í Noregi í öðru norrænu ríki
Ekki er nauðsynlegt að skrá ökutæki sem skráð er í Noregi í öðru norrænu ríki ef einungis er dvalið í landinu í stuttan tíma. Mismunandi er eftir löndum hversu lengi má aka ökutæki sem skráð er í öðru landi.
Leyfilegt er að nota ökutæki sem skráð er í Noregi í því landi sem heimsótt er ef dvölin er styttri em 12 mánuðir í Svíþjóð, 6 mánuðir í Danmörku og Finnlandi, á Íslandi og í Færeyjum og 3 mánuðir á Grænlandi. Ef dvölin og notkunin er lengri en uppgefinn tími, skal skrá ökutækið.
Þeir aðilar sem bera ábyrgð á skráningu ökutækja eru Umferðastofa á íslandi, Transportstyrelsen í Svíþjóð, Tulli í Finnlandi og SKAT í Danmörku.
