Bætur til barnafjölskyldna í Noregi
Eftirfarandi eru upplýsingar um barnabætur, bætur til foreldra smábarna og bætur til einstæðra foreldra
Barnabætur
Barnabætur eru ætlaðar til greiðslu á útgjöldum vegna barna. Einstæðir foreldrar geta átt rétt á barnabótaauka, til greiðslu á þeim aukaútgjöldum sem falla til þegar þeir búa með barn á eigin heimili. Barnabætur eru greiddar vegna allra barna undir 18 ára aldri sem búsett eru í Noregi.
Hver getur fengið barnabætur?
Einstaklingur getur fengið barnbætur ef hann á barn undir 18 ára aldri sem býr hjá honum. Meginreglan er að barnið sé búsett í Noregi, en einnig er hægt að fá barnabætur vegna barns sem býr í öðru EES-ríki ef annað foreldrið:
- starfar í Noregi, á norsku landgrunni eða á norsku skipi
- Á aðild að almannatryggingum á meðan hann eða hún starfar í öðru EES-ríki eða fær greiddan lífeyri frá Noregi vegna fyrri starfa
Ef foreldri starfar í öðru EES-ríki en Noregi og barnið er búsett í Noregi, eru barnabætur greiddar frá því landi sem unnið er í. Ef barnabætur þess lands eru lægri en norskar barnabætur, greiðist mismunur frá Noregi þannig að heildarbætur verði jafnháar þeim norsku.
Tilkynna verður til NAV ef annað foreldranna hefur eða hættir starfi í öðru EES-ríki.
Barnabætur eru einnig greiddar ef viðkomandi dvelur tímabundið í útlöndum. Það á þó einungis við ef dvölin er skemmri en 6 mánuðir. Ef dvölin er lengri telst barnið vera flutt frá Noregi. Engu að síður er hægt að fá undanþágu ef barnið og sá sem barnið býr hjá á meðan á dvöl erlendis stendur, eiga aðild að almannatryggingakerfinu.
Hvernig er sótt um?
Barnabætur eru venjulega veittar sjálfkrafa vegna barna sem fæðast í Noregi og eru þær greiddar móðurinni, nema foreldrar tilkynni að faðirinn eigi að fá þær greiddar. Nauðsynlegt er að sækja um barnabætur ef:
- móðirin er ekki með lögheimili í Noregi
- barnið er eldra en sex mánaða þegar réttur til barnabóta verður virkur
- viðkomandi gæti átt rétt á barnabótaauka
- meta á barnabætur eftir reglum EES-samningsins eða öðrum bótasamningum
- foreldrarnir hafa gert skriflegan samning um skipta búsetu barnsins og vilja að greiðslunni veri skipt
Umsóknina skal senda á næstu NAV-skrifstofu.
Hver er upphæð bótanna?
Venjulegar barnabætur eru 970 norskar krónur á mánuði. Hægt er að fá barnabótaauka við ákveðnar aðstæður.
Á vefsíðu NAV eru nákvæmar upplýsingar um upphæðir og skilyrði fyrir barnabótaauka.
Fjárstuðningur til foreldra smábarna
Fjárstuðningur (Kontantstøtte) er greiðsla til foreldra sem eiga börn á aldrinum eins til þriggja ára. Hann er veittur þeim sem nýta sér ekki eða aðeins að hluta leikskóla á vegum ríkisins. Bæturnar eru að hámarki greiddar í þrjá mánuði.
Á vefsíðu NAVeru nánari upplýsingar um hver getur fengið bætur, hvernig sótt er um og hve háar upphæðir eru veittar.
Meginreglan er að bætur eru veittar vegna barna sem búsett eru í Noregi. Norrænir ríkisborgarar teljast búsettir frá innflutningsdegi samkvæmt norræna sáttmálanum. Í einstaka tilvikum eru greiddar bætur fyrir börn sem búsett eru í öðru EES-ríki, á vefsíðu NAV eru nánari upplýsingar um hvaða tilfelli það eru og hvaða reglur gilda um þau. Í einstaka tilvikum er veittur fjárstuðningur við tímabundna dvöl í útlöndum í allt að þrjá mánuði.
Bætur til einstæðra mæðra/feðra
Bætur til einstæðra mæðra/feðra eiga að tryggja tekjur fyrir þá sem sjá einir um börn og stuðla að því að einstaklingar geti séð fyrir sér. Meginreglan er sú að viðkomandi þarf að hafa átt aðild að almannatryggingum í a.m.k. þrjú ár og búsettur í Noregi til þess að fá bætur.
Á vefsíðu NAV eru nánari upplýsingar um hver getur fengið bætur, hvernig sótt er um og hve háar upphæðir eru veittar.
Aðrar bætur
Á vefsíðu NAV eru upplýsingar um aðra þjónustu og bætur eins og:
- veikt barn/fjölskylda
- aukaframfærslu
- barnalífeyrir
- umönnunarstig
- greiðslur til fyrrverandi umönnunaraðila fjölskyldu
- félagsþjónustur
