Framhaldsskólamenntun í Noregi
Í Noregi er hægt að velja á milli margra leiða inna framhaldsskólans. Framhaldsskólamenntun lýkur með stúdentsprófi, prófi úr starfsmenntaskóla eða prófi í öðru undirstöðunámi. Framhaldsskólanám er almennt þriggja ára nám, eða 2 ár í skóla og 2 ár í starfsþjálfun. Nánari upplýsingar um aðgangsskilyrði í framhaldsskóla og um skipulag framhaldsskólamenntunar í Noregi. Upplýsingar um æðri menntur eru í kaflanum um „Nám í Noregi".
Allir á aldrinum 16 til 19 ára eiga lögbundinn rétt til að stunda framhaldsskólanám. Námið er valfrjálst og fjármagnað af sveitarfélögum. Skilyrði er að nemendur hafi lokið 10 ára grunnskóla eða samsvarandi námi. Framhaldsskólanám felst annars vegar í bóklegu námi, sem er undirbúningur til stúdentsprófs eða starfsnámi. Starfsnámi lýkur með prófi í einstakri iðn, sem veitir starfsréttindi en ekki sveinsbréf. Velji einstaklingur starfsnám á hann möguleika á og er fær um að taka þátt í atvinnulífinu eftir 3 til 5 ára nám. Einnig er hægt að byggja ofan á almenna stúdentsmenntun. Í námi til stúdentprófs er aðaláhersla lögð á bóknám og undirbúningi fyrir æðra nám. Einstaklingar sem velja að stunda nám til stúdentsprófs, geta hafið nám í æðri menntastofnunum að loknu þriggja ára námi í framhaldsskóla.
Framhaldsskólinn er samsettur af 12 ólíkum námsleiðum, 3 sem leiða til stúdentsprófs og 9 sem leiða til starfsmenntaskólaprófs. Fyrsta árið er námsleið valin, á öðru og þriðja ári eru valdar leiðir innan þeirrar námsleiðar sem valin var. Nánari upplýsingar um námsleiðir eru á vefsíðunni um framhalsskólanámið informasjonssiden for videregående opplæring
Umsóknarfrestur er almennt 1. mars. Venjan er sú að einstaklingur verður að vera skráður hjá Hagstofu áður en umsóknarfrestur er liðinn, til að geta skráð sig í framhaldsskóla.
Ungt fólk frá öðrum norrænum ríkjum á sama rétt til framhaldsskólanáms og ungt fólk sem gengið hefur í grunnskóla í Noregi. Einstaklingur sem lokið hefur hluta af framhaldsskólanámi annars staðar á Norðurlöndum, getur fengið nám sitt viðurkennt í Noregi eftir sömu reglum og gilda þegar nemendur flytjast frá einum skóla í annan í landinu. Ekki er gerð krafa um norskukunnáttu þegar nemendur skrá sig í framhaldsskólanám. Það er vegna þess að gerður hefur verið norrænn samningur um samstarf um framhaldsskólamenntun. Samningurinn um nám á framhaldsskólastigi er á vefsíðu Norrænu ráðherranefndarinna.
Almennar upplýsingar og upplýsingar um heimilisföng allra framhaldsskóla í Noregi eru á vefsíðunni Norsk skoleinformasjons nettsider en þar eru allar upplyýsingar um nám og menntun í Noregi.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni hjemmesidene for videregående opplæring i Norge.
Framhaldsskólanám í öðru norrænu ríki
Norðurlöndin, Danmörk, Finnland, Ísland, Svíþjóð og Noregur, hafa gert með sér samkomulag um að ungt fólk með búsetu í einu norrænu ríki hafi sömu réttindi til framhaldsskólanáms og ríkisborgarar þess ríkis sem þeir búa í. Einstaklingur sem lokið hefur hluta af framhaldsskólanámi annars staðar á Norðurlöndum, getur fengið nám sitt viðurkennt í Noregi eftir sömu reglum og gilda þegar nemendur flytjast frá einum skóla í annan í landinu. Framhaldsskólanám felst annars vegar í bóklegu námi, sem er undirbúningur til stúdentsprófs eða starfsnámi.
Hægt er að sækja um styrk til framhaldsskólanáms við viðurkenndar menntastofnanir á Norðurlöndum. Umsóknir um framhaldsskólanám skulu sendar í gegnum gagnagrunn Lánasjóðsins Lånekassens lærestedsdatabase.
Nánari upplýsingar um hvernig sótt er um og hvaða styrkir eru í boði vegna framhaldsskólanáms, eru á vefsíðu LánasjóðsinsLånekassen.
