Grunnskóli í Noregi
Í norska skólakerfinu eiga börn rétt á tíu ára skólagöngu og eru flestir skólar á vegum hins opinbera. Eftirfarandi eru nánari upplýsingar um fræðsluskyldu og skólakerfi í Noregi.
Sveitarfélögin fjármagna grunnskólann í Noregi og hafa þau mikið frelsi hvað varðar skipulagningu fræðslunnar. Í Noregi eiga öll börn rétt á og ber skylda til að ganga í grunnskóla. Skyldan og rétturinn til grunnskólagöngu ganga í gildi þegar barnið hefur verið í Noregi í þrjá mánuði. Börn hefja skólagöngu í ágústmánuði það ár sem þau verða 6 ára. Grunnskólinn, sem er skylda, er tíu ár. Kennsla og námsgögn eru ókeypis. Skrá þarf barnið í skólann. Á vefsíðu Norsk skoleinformasjon eru heimilisföng og símanúmer allra grunnskóla í Noregi, bæði opinberra og einkarekinna.
Skólabörn í 1. – 4. bekk eiga kost á dvöl á skóladagheimili í tengslum við skólann fyrir og eftir skólatíma. Sveitarfélög í Noregi eru skyldug til að reka skóladagheimili á meðan skólaárið stendur yfir. Forráðamenn nemenda ráða hvort þeir notfæra sér það. Hafið samband við skólayfirvöld eða skólann sjálfan til að fá nánari upplýsingar um skóla og skóladagheimili.
