Document Actions

Leikskóli og bætur til foreldra smábarna í Noregi

Leikskólar í Noregi og hvernig sótt er um leikskólavist? Hvaða bætur eru í boði (kontantstøtte) og hverjir geta fengið þær? Eftirfarandi eru upplýsingar um umönnun barna í Noregi.

Höstdag hos Nordiska rådet och Nordiska ministerrådet
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Leikskóli

Sveitarfélög í Noregi bera ábyrgð á leikskólum. Þar eru bæði einkareknir leikskólar og leikskólar sem reknir eru af hinu opinbera fyrir börn á aldrinum 1-5 ára. Umsóknum um leikskólavist skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem fæst í leikskólanum eða hjá sveitarfélaginu. Leikskólagjöld og inntökureglur geta verið mismunandi milli leikskóla, en stjórnvöld hafa ákveðið hámarksupphæð sem foreldrar þurfa að greiða fyrir heilsdagsvistun. Nánar um það á vefsíðu menntamálaráðuneytisins: Kunnskapsdepartementet.

Venjulega eru börn tekin inn í leikskóla einu sinni á ári, að vori. Nánari upplýsingar fást hjá því sveitarfélagi sem viðkomandi býr í eða hyggst flytja til. Ekki er hægt að sækja um leikskólapláss fyrr en barnið hefur fengið kennitölu (fødselsnummer), eða tímabundna kennitölu. Upplýsingar um heimilisföng og símanúmer hjá leikskólum í Noregi (einka- og ríkisreknum) eru á vefsíðunni Norsk skoleinformasjon.

Nýjar reglur um leikskólavist barna tóku gildi 1.1.2009. Reglurnar kveða á um réttindi barna til leikskólavistar sem orðin eru eins árs í lok ágústmánaðar, árið sem sótt er um leikskólavist Börn skulu fá leikskólavist frá ágústmánuði árið sem sótt er um. Börn sem fædd eru í september og seinna eiga rétt á leikskólavist frá ágústmánuði árið eftir.

Fjárstuðningur til foreldra smábarna

Fjárstuðningur er veittur vegna barna á aldrinum eins til þriggja ára og ættleiddra barna sem ekki hafa hafið skólagöngu. Bæturnar eru veittar að hámarki í 23 mánuði og barnið má ekki vera í heilsdagsvistun í leikskóla sem rekinn er með opinberum fjárstuðningi. Sé barnið í leikskóla hluta úr degi er hægt að fá bætur að hluta. Hægt er að fá fjárstuðning vegna ættleiddra barna í allt að 23 mánuði eftir að bótatímabil fullra ættleiðingarbóta hefur runnið sitt skeið, jafnvel þó barnið hafi orðið þriggja ára á tímabilinu, þó með því skilyrði að barnið hafi ekki hafið skólagöngu.

Grunnreglan er sú að barnið búi í Noregi. Barnið telst búa í Noregi hafi það dvalið þar í meira en 12 mánuði. Í einstaka tilvikum er veittur fjárstuðningur við tímabundna dvöl í útlöndum í allt að þrjá mánuði. Í einstökum tilvikum er einnig veittur fjárstuðningur vegna barna sem búsett eru í öðru EES-ríki ef fyrirvinna þess starfar í Noregi, á norsku skipi eða á norska landgrunninu, þiggur eftirlaun frá Noregi vegna starfs eða er launþegi sem sendur er frá Noregi til starfa erlendis.

Nánar um fjárstuðning og möguleika á að fá hann greiddan erlendis á vefsíðu NAV.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.