Meðganga og fæðing í Noregi
Eftirfarandi eru upplýsingar um réttindi á meðgöngu í Noregi.
Ef kona býr í Noregi og á aðild að almannatryggingakerfinu skal hún snúa sér til heimilislæknis við þungun. Barnshafandi konur greiða ekki fyrir læknisskoðanir á meðgöngu. Í kaflanum um flutninga til Noregs „Flytte til Norge” eru nánari upplýsingar um heimlislækna (Fastlegeordningen) og aðild að almannatryggingakerfinu. Nánari upplýsingar um heimilislækna (fastlegeordningen) eru einnig á vefsíðu Helfo
Í starfi á meðan á meðgöngu stendur
Vinnuumhverfislögin skylda vinnuveitendur til að sjá til þess að nauðsynleg aðlögun eða flutningur í annað starf eigi sér stað, ef kona er þunguð og getur ekki haldið áfram í starfi sínu af heilsufarslegum ástæðum. Nánari upplýsingar á vefsíðu NAV.
Meðgöngugreiðslur
Þungaðar konur eiga kost á meðgöngugreiðslum ef þær geta ekki unnið á meðgöngutímanum vegna hættu á að skaða fóstrið. Aðild að norska almannatryggingakerfinu (Folketrygden) er skilyrði fyrir meðgöngugreiðslum.
Á vefsíðu NAV eru nánari upplýsingar um hvenær hægt er að fá meðgöngugreiðslur, hvernig sótt er um og um upphæðir.
