Innflutningur gæludýra til Noregs
Hvaða dýr má flytja inn til Noregs? Þarf að bólusetja hunda áður en flutt er? Nánari upplýsingar um innflutning dýra til Noregs.
Innflutningur hunda og katta
Noregur fylgir reglum ESB frá 2004 um ferðalög með og innflutning á gæludýrum. Sameiginlegar reglur gilda innan ESB um ferðalög með og innflutning á hundum, köttum og hreysiköttum.
Flytja má inn hunda og ketti og ferðast með þá til Noregs að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- að dýrið sé merkt með örflögu eða húðflúri. Eingöngu FE CAVA eða ISO-staðall eru viðurkenndir.
- að dýrið hafi ESB dýravegabréf gefið út af löggildum dýralækni
- að dýrið sé bólusett gegn hundaæði, með óvirku bóluefni (inaktivert vaksine)
- að dýrið hafi verið meðhöndlað vegna bandorms af dýralækni, að minnsta kosti 10 dögum áður en það kemur til Noregs. Meðferðina skal endurtaka í síðasta lagi 7 dögum eftir komu til Noregs og skal hún skráð í vegabréfið
- að tekin verði blóðprufa til þess að athuga magn mótefna gegn hundaæði minnst 120 dögum og mest 365 dögum eftir síðustu bólusetningu við hundaæði. Viðurkennd rannsóknastofa skal gefa út vottorð um blóðprufuna, sem sýni að dýrið sé með mótefni sem er minnst 0,5 IE/ml. Til þess að skjölin haldi gildi sínu skal eigandi sjá til þess að dýrið sé bólusett gegn hundaæði á ný, innan þess tímaramma sem framleiðandi mælir með.
Athugið að dýr sem eru lögleg í Svíþjóð má flytja til Noregs án takmarkana og öfugt, bæði til skemmri og lengri dvalar. Nánari upplýsingar um þetta efni, nema þegar um svonefnda hættulega hunda er að ræða, eru á vefsíðu matvælaeftirlitsins.
Athugið að meðhöndla þarf hunda og ketti sem koma frá Svíþjóð gegn bandormi, þetta á við um hunda og ketti sem eru eldri en þriggja mánaða. Meðferð gegn dvergbandormi úr refum verður að eiga sér stað minna en 48 tímum áður en ferðast er til Noregs. Hunda- og kattaeigendur geta sjálfir meðhöndlað dýrin en verða að geta sannað að dýrin hafi verið meðhöndluð þegar komið er til landsins. Nánar um nýjar reglur um hunda og ketti frá Svíþjóð á vefsíðu matvælaeftirlitsins Mattilsynets hjemmesider.
Innflutningur á öðrum dýrum
Á vefsíðu matvælaeftirlitsins Mattilsynets nettsider eru tæmandi upplýsingar um innflutning einkaaðila og fyrirtækja á keppnis- og gæludýrum eins og til að mynda búrfuglum, kanínum og nagdýrum.
Ekki er leyfilegt að flytja inn framandi dýr til Noregs, nánari lýsing er á vefsíðu matvælaeftirlitsins Mattilsynest nettsider om ekotiske dyr.
Ef ætlunin er að ferðast með hest er mælt með að viðkomandi lesi vefsíðu matvælaeftirlitsins um inn- og útflutning á hestum Mattilsynets nettsider om hesteimport og -eksport, þar eru nánari upplýsingar.
