Kaup á vörum og þjónustu í Noregi
Mörg fjarskiptafyrirtæki veigra sér við að selja viðskiptavinum sem eiga ekki lögheimili í Noregi áskrift . Hafið þó beint samband við slík þjónustufyrirtæki og kynnið ykkur reglur þeirra, þar á meðal hvort þau skipta við fólk sem ekki á lögheimili í Noregi.
Þótt fólk eigi lögheimili í Noregi fara mörg fyrirtæki fram á framvísun skattskýrslu sem staðfestir tekjur, áður en hægt er að kaupa áskrift. Hafi skattauppgjör ekki borist er hægt að staðfesta lögheimili í Noregi og framvísa launaseðlum og persónuskilríkjum. Gild persónuskilríki geta verið vegabréf eða nýlegt norrænt ökuskírteini sem fylgir EES-staðlinum.
Þegar um farsíma er að ræða er einnig hægt að kaupa fyrirframgreitt símakort. Við kaup á slíku korti borgar viðskiptavinurinn í raun fyrirfram fyrir símanotkun sína. Við kaup á slíku korti er ekki farið fram á norska kennitölu eða lögheimili í Noregi. Kortin eru yfirleitt til sölu á vefjum farsímafyrirtækja, í söluturnum og á bensínstöðum.
Afnotagjald
Í Noregi er skylda að greiða afnotagjald sjónvarps til ríkisins (lisens) og ber öllum sem eiga sjónvarpsmóttakara skyldu til að greiða það. Greiðsluskyldan er óháð því hvers konar sjónvarpsmóttaka viðkomandi á eða hvaða stöðvar hann velur að horfa á.
Afnotagjaldið greiðist tvisvar á ári, í janúar og júlí.
Afnotagjaldið er greitt fyrir hvert heimili fyrir sig og getur sá sem er skráður fyrir leyfinu og maki/sambýlingur hans því verið með marga móttakara á sama heimili, ef sjónvarpsmóttakarinn er notaður af þeim og börnum á þeirra framfæri. Ef viðkomandi er með sjónvarpsmóttakara í frístundahúsi, sumarhúsi, hjólhýsi, frístundabát eða annars staðar utan heimilisins, falla þeir undir sama skráða leyfi.
Sjónvarpsmóttakari er m.a. sjónvarp, DVD/myndbandstæki með móttakara, afruglarar, tölvur með sjónvarpskorti og önnur svipuð tæki.
Ef sjónvarpsmóttakari hefur verið keyptur hjá söluaðila leyfisskyldra tækja, er kaupandi skyldugur að tilkynna kaupin til afnotagjaldadeildar norska ríkisútvarpsins (NRK) ef hann hefur ekki fengið kröfu um greiðslu á afnotagjaldi innan þriggja mánaða. Ef einstaklingur hefur fengið sjónvarpsmóttakara á annan hátt (keypt, fengið að láni, leigt) skal hann tilkynna það til afnotagjaldadeildar norska ríkisútvarpsins (NRK). Ef viðkomandi dvelur erlendis hluta ársins getur hann í ákveðnum tilvikum greitt afnotagjald fyrir hluta ársins. Skilyrðið er að móttakarinn sé ekki í notkun í Noregi á þessu tímabili. Senda verður skriflega beiðni þess efnis til NRK áður en farið er utan. Nánar á vefsíðu afnotagjaldadeildar norska ríkisútvarpsins NRK lisensavdelings nettsider.
Stafrænt sjónvarp
Í Noregi eru fjórar mismunandi leiðir til að taka við stafrænum sjónvarpsútsendingum, með loftneti, í gegnum kapal, með gervihnattadiski og í gegnum breiðbandið. Nánari upplýsingar um hvaða leiðir eru til að taka við stafrænu sjónvarpi eru á vefsíðu Medietilsynet. Árið 2010 verða 98 prósent norskra heimila í stakk búin til að taka við sjónvarpsefni í gegnum stafræna dreifikerfið. Til þess að ná útsendingum NRK í gegnum stafræna dreifikerfið þarf hvorki kort né áskrift. NRK dreifir eigin efni í stafræna dreifikerfinu.
Áskrift um gervihnött
Áskrift gegnum gervihnött fæst hjá ýmsum þjónustaðilum og nánari upplýsingar um þá fást í sjónvarpsverslunum.
Sjónvarp um breiðband (IPTV)
Einnig er hægt að tengjast stafrænu sjónvarpi í gegnum breiðband. Slíkar lausnir eru oft í boði frá þeim aðila sem býður breiðbandslausnir, sem oft býður nettengingu, síma og sjónvarp í einum pakka (triple-play). Á vefsíðu Telepriser eru upplýsingar um verðskrá fyrir breiðband.
Farsíma-, heimilissíma- og breiðbandsáskrift
Á vefsíðu Póst og símaeftirlitsins Post- og teletilsynets hjemmesider er verðskrá, sem ætlað er að auðvelda neytendum val á síma- og breiðbandsáskrift.
Áskrift að rafmagni og flutningsneti
Í Noregi geta neytendur valið á milli raforkusala sem bjóða mismunandi þjónustusamninga. Nánari upplýsingar um þjónustusamninga og verð er að finna á vef samkeppnisstofnunar Konkurransetilsynet. Þar er einnig reiknivél sem reiknar út áætlaðan kostnað vegna raforkunotkunar í mismunandi sveitarfélögum. Einnig er nauðsynlegt að gerast áskrifandi að flutningsneti til þess að geta tekið á móti raforku á heimili sínu. Neytendur geta ekki valið á milli fleiri dreifingaraðila, það fer eftir heimilisfangi hvað velst.
Ekki þarf að eiga lögheimili í Noregi til þess að gerast áskrifandi að raforku og dreifingu hennar. Ef fólk á ekki lögheimili í Noregi geta raforkusalar farið fram á framvísun launaseðla eða aðra staðfestingu á tekjum frá atvinnurekanda.
Að gerast áskrifandi að rafmagni og flutningsneti
Nóg er að hafa samband við raforkusala til þess að gerast áskrifandi að raforku og dreifingu hennar, þrátt fyrir að þessi þjónusta sé í höndum tveggja mismunandi aðila. Raforkusalinn hefur þá samband við dreifingaraðilann fyrir hönd viðskiptavinarins.
Uppsögn á áskrift að rafmagni og flutningsneti
Mikilvægt er að muna að segja upp áskriftinni til þess að komast hjá því að þurfa að greiða fyrir raforkunotkun síðari íbúa. Margir gleyma þessu. Nóg er að senda uppsagnarbréf aðeins til raforkusalans. Vert er að hafa í huga að það er 14 daga uppsagnarfrestur á áskrift að dreifingu raforkunnar ef nýr íbúi tekur ekki við áskriftinni.
Spurningar og vandamál við kaup á vörum og þjónustu
Ef einstaklingar í Noregi hafa spurningar varðandi neytendamál, kaup á vörum og þjónustu og kærur geta þeir haftsamband við Neytendasamtökin (Forbrukerrådet). Neytendasamtökin eru hagsmunasamtök allra þeirra sem nota vörur og þjónustu í Noregi Á vefsíðu þeirra Forbrukerportalen eru ýmsar upplýsingar um hvað hafa ber í huga í tengslum við kaup á vörum og þjónustu.
Neytendasamtökin fjalla einnig um kærumál milli neytenda og seljenda vara og þjónustu. Neytendasamtökin veita ókeypis lögfræðiráðgjöf í síma 03737. Á vefsíðu þeirra eru einnig nánari upplýsingar hjemmesider for nærmere kontaktinformasjon.
Hafi einstaklingur verslað í öðrum ríkjum í Evrópu getur verið nytsamlegt að skoða vefsíðu sem ber nafniðForbrukerEuropa. Þar eru upplýsingar frá Neytendasamtökunum fyrir neytendur sem verslað hafa erlendis.
