Document Actions

Kosningaréttur í Noregi

Eftirfarandi eru skilyrði sem uppfylla þarf til að öðlast kosningarétt til þingkosninga, kosninga til fylkisþings og sveitarstjórnarkosninga í Noregi.

Människor
Ljósmyndari
Image select

Kosningar

Í Noregi eru þingkosningar (til Stórþingsins) á fjögurra ára fresti. Kosningar til fylkisþings og sveitarstjórna eru haldnar samtímis fjórða hvert ár, á miðju kjörtímabili Stórþingsins. Kosningar til Samaþingsins eru haldnar sama ár og kosningar til Stórþingsins.

Kosningaréttur

Einungis norskir ríkisborgarar hafa atkvæðarétt í kosningum til Stórþingsins og kjósendur verða að vera, eða hafa verið, búsettir í Noregi. Samar hafa kosningarétt í kosningum til Samaþingsins. Kosningaaldurinn í öllum kosningum er 18 ár og verður þeim aldri að vera náð fyrir lok kosningaárs.

Norrænir ríkisborgarar hafa kosningarétt í sveitarstjórna- eða fylkisþingskosningum, svo framarlega sem þeir eru skráðir og búsettir í Noregi í síðasta lagi 31. maí á kosningaárinu. Aðrir erlendir ríkisborgarar hafa kosningarétt ef þeir hafa verið skráðir og búsettir í landinu í þrjú ár samfellt fyrir kosningadag.

Nánari upplýsingar um kosningar og atkvæðagreiðslu í Noregi á vefsíðunni offentlige valgportalen.

Tengt efni
  • Ríkisborgararéttur í Noregi

    Eru þeir sem fæðast í Noregi norskir ríkisborgarar? Er hægt að vera ríkisborgari í örðu landi í viðbót við Noreg? Hvernig verður maður norskur ríkisborgari? Eftirfarandi eru þær reglur sem gilda um norskan ríkisborgararétt.

  • Þjóðskrá í Noregi

    Að neðan eru upplýsingar um hve lengi einstaklingar mega dvelja í Noregi án þess að skrá sig í þjóðskrá og hvernig skráning fer fram ef viðkomandi hyggst dvelja í Noregi lengur en sex mánuði.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.