Tollareglur í Noregi
Þegar flust er til Noregs þarf að fylla út vottorð um innflutning á búslóð. Vottorðið er afhent hjá Tollvesenet þegar búslóðin er tollafgreidd. Eftirfarandi eru reglur um innflutning á ýmsum vörum.
Ekki er hægt að tollafgreiða búslóðina fyrr en vottorðinu hefur verið skilað rétt útfylltu. Hafa verður samband við Tollstjóra þegar búslóðin berst til Noregs.
Á vefsíðu Tollvesenet eru nánari upplýsingar um reglur varðandi flutning til Noregs. Þar er einnig eyðublað vegna tollafgreiðslu búslóða.
Búslóðina má flytja inn án tolla og gjalda ef:
- einstaklingur hefur dvalist erlendis samfleytt í að minnsta kosti eitt ár,
- einstaklingur hefur átt og notað heimilishluti í búslóð á meðan á dvöl erlendis stóð og hann ráðgerir að nota þá áfram í Noregi,
- hlutirnir bera merki þess að vera notaðir,
Nokkrar vörutegundir eru háðar sérstökum innflutningsskilyrðum, sjá nánar hér að neðan.
Vélknúin farartæki og skemmtibátar
Sérreglur gilda um vélknúin farartæki og skemmtibáta. Þær er hægt að nálgast hjá Tollstjóra. Á vefsíðu Tollstjóra eru einnig bæklingarnir „Toll og avgifter ved innførsel av motorkjøretøy" og „Innførsel av fritidsbåt til Norge".
Atvinnutæki
Ekki er hægt að flytja inn atvinnutæki án þess að greiða tolla og gjöld.
Nýir hlutir
Ef nýir hlutir fylgja með búslóð við flutninga ber að greiða tolla og önnur gjöld af þeim.
Matvæli
Greiða þarf tolla og önnur gjöld af matvælum. Þá geta verið sérreglur um innflutning á vissum matvælum. Nánari upplýsingar veita Tollvesenet og Mattilsynet.
Áfengi og tóbak
Ef sterkt áfengi, létt vín, bjór eða tóbak eru með í búslóðinni þarf að greiða gjöld af þessum vörum. Í dag er leyfilegt að hafa eftirfarandi meðferðis til Noregs án þess að greiða tolla:
- Brennd vín/líkjör o.þ.h. frá 22% til 60% að styrkleika: 1 lítri
- Vín o.þ.h. frá 4,7% til 22% að styrkleika: 1,5 lítrar
- Bjór sterkari en 2,5% (einnig sterkur bjór), eða áfengt gos o.þ.h. frá 2,5 til 4,7% að styrkleika: 2 lítrar
Hægt er að skipta á magni brennds víns og 1,5 lítrum af léttvíni eða bjór, en magni víns er hægt að skipta í sama magn bjórs, lítra fyrir lítra.
Dæmi um löglega samsetningu:
1 lítri af brenndu víni + 1,5 lítrar af léttvíni + 2 lítrar af bjór
3 lítrar af léttvíni + 2 lítrar af bjór
5 lítrar af bjór
Nánari upplýsingar veitir Tollvesenet.
Vopn
Vopn til eigin nota má flytja inn tollfrjálst með búslóðinni. Sækja þarf um innflutningsleyfi hjá lögregluyfirvöldum þar sem fólk hyggst setjast að. Sjá einnig bæklinginn „Innførsel og utførsel av våpen“ á vefsíðu Tollvesenet.
Plöntur
Pottaplöntur eru tollfrjálsar ef þær eru fluttar inn með búslóð. Nánari upplýsingar um innflutningsreglur veitir Mattilsynet.
Dýr
Nánari upplýsingar um innflutning á lifandi dýrum með búslóð veita Matvælaeftirlitið eða upplýsingaver Tollstjóra (Tollvesenet) í síma: 0 30 12. Sjá einnig bæklinginn „Innførsel av kjæledyr“ á vefsíðu Tollvesenet.
Hljóðvarps- og sjónvarpstæki
Sjónvarpstæki og myndbandstæki með útvarpsviðtæki þarf að geta sérstaklega í 3. lið búslóðarvottorðsins. Þá þarf að greiða afnotagjald. Stundum er farið fram á CE-merki.
Nánari upplýsingar veitir Direktoratet for samfunnssikkerhet og beredskap.
