Document Actions

Upplýsingar fyrir einstaklinga með skerta starfshæfni

Má taka hjálpartæki með sér í frí til útlanda? Hvernig kemst ég í samband við Umsjónarfélag einhverfra í Noregi? Eftirfarandi eru upplýsingar fyrir einstaklinga með skerta starfshæfni í Noregi.

Handicapskilt
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt

Norska ríkisstjórnin vill gera einstaklingum með skerta starfshæfni kleyft að standa vörð um réttindi sín og uppfylla skyldur sínar sem þjóðfélagsþegnar. Ríkisstjórnin leggur því regluna um þjóðfélagslegt jafnrétti og aðgengi fyrir alla til grundvallar starfi sínu. Tryggja verður einstaklingum með skerta starfshæfni lífskjör og lífsgæði til jafns við aðra þjóðfélagsþegna.

Fjárhagsleg aðstoð við einstaklinga með skerta starfshæfni

Einstaklingar sem búsettir eru í Noregi geta fengið grunn- og aukaframfærslu til þess að greiða útgjöld eða fyrir sérþarfir vegna skertrar starfshæfni:

  • Grunnframfærsla er veitt að fullu eða hluta til, til þess að greiða aukaútgjöld vegna ákveðinna aðstæðna sem upp koma vegna viðvarandi sjúkdóms, slysa eða skertrar starfshæfni.
  • Aukaframfærsla er veitt einstaklingum sem þurfa á sérstakri umönnun og eftirliti að halda vegna veikinda, slysa eða meðfæddrar skertrar starfshæfni.
  • Hærri aukaframfærsla er veitt börnum og unglingum undir 18 ára aldri, ef þörf fyrir umönnun og eftirlit er meiri en venjuleg aukaframfærsla getur greitt.

Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar á vefsíðu NAV. Upplýsingar og nytsamlegar krækjur eru einnig á vefsíðum Norges handikapforbund og Funksjonshemmedes fellesorganisasjon.

Flutningar

Samkvæm 9. grein norræna sáttmálans um félagsaðstoð og félagsþega þjónustu eiga viðkomandi stjórnvöld að aðstoða einstaklinga með skerta starfshæfni við flutninga. Stjórnvöld, á hverjum stað, bera ábyrgð á því að tryggja einstaklingi með skerta starfshæfni að viðkomandi geti flutt ef:

  • einstaklingurinn flytur af frjálsum vilja
  • einstaklingurinn hefur sérstök tengsl við það land sem hann eða hún ætlar að flytja til
  • talið er að að lífsskilyrði einstaklingsins verði betri í nýju landi

Ef það er mat einstaklings með skerta starfshæfni að flutningur myndi bæta lífsskilyrði hans eða hennar, er það í sjálfu sér sterk rök fyrir því að flutningur eigi sér stað. Hafið samband við búsetusveitarfélag til þess að fá aðstoð við flutningana. Ef nauðsyn ber til, skal vísa til 9. greinar norræna sáttmálans um félagsaðstoð og félagslega þjónustu.

Flutningur til útlanda

Ef einstaklingur hyggst flytja til útlanda og þarfnast hjálpartækis er oftast nauðsynlegt að útvega það á á staðnum eða samkvæmt samkomulagi við hjálpartækjaaðstoð NAV eða NAV á alþjóðavettvangi. Nánari upplýsingar og upplýsingar um tengiliði á vefsíðu NAV. Ef einstaklingur býr í öðru EES-ríki skal fyrst sækja um hjálpartæki þar. Ef umsókn er neitað má sækja um hjálpartæki í Noregi.

Flutningar frá útlöndum

Hyggist einstaklingur flytja til Noregs til langframa frá öðru norrænu ríki skal hann hafa samband við það sveitarfélag sem hann býr í núna og það sveitarfélag sem hann hyggst flytja til, til þess að fá nánari upplýsingar um hvað skal gera.

Blindrahundur

Við innflutning á blindrahundi gilda sömu reglur og fyrir aðra hunda, fjallað er um þessar reglur í kaflanum um "Innflutning gæludýra".

Hjálpartæki til útlanda

Hvort hægt er að taka hjálpartæki með til útlanda veltur á því hvar einstaklingurinn býr og hvert hann ætlar. Meginreglan er sú að einstaklingar mega taka hjálpartæki með í frí og styttri dvalir í EES-ríkjum. Ef viðkomandi hyggst flytja til útlanda og dvelja þar lengur en í 12 mánuði verður að senda umsókn til alþjóðadeildar NAV um leyfi til að hafa hjálpartækin með. Það á einnig við ef viðkomandi býr í útlöndum og sækir um hjálpartæki í Noregi. Ef einstaklingur dvelur eða er búsettur í Noregi tímabundið og ætlar að dvelja erlendis skemur en 12 mánuði á hann að hafa samband við hjálpartækjamiðstöð NAV fyrir nánari upplýsingar.

Ef einstaklingur hefur fengið bifreið með aðstoð frá almannatryggingum, má hann ferðast með hana úr landi, innan og utan EES í allt að einn mánuð án þess að sækja um leyfi. Við sérstakar aðstæður er hægt að sækja um undanþágu til að fara með bifreiðina tíl útlanda lengur en einn mánuð. Umsóknina skal senda á Umferðarstofu (Bilkontoret) í því fylki sem viðkomandi býr í.

Lyf

Norrænu ríkin eru aðilar að Schengen-samstarfinu og eru bundin af reglum um innflutning lyfja til einkanota. Schengen-samstarfið nær til allra ESB-ríkja (að Bretlandi og Írlandi undanskildum) auk Noregs og Íslands.

Leyfilegt er að kaupa lyf erlendis eða á netinu að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

  • lyfið skal vera til persónulegra nota (persónuleg not þýðir: Notkun einstaklings á persónulegum lyfjum).
  • lyfið verður að vera keypt á löglegan hátt
  • innflutningur lyfja með pósti er aðeins leyfilegur frá ríkjum innan EES, en slíkur innflutningur er ekki leyfilegur ef aðilar eru undir 18 ára aldri
  • ekki er leyfilegt að flytja inn lyf sem innihalda efni sem flokkast sem fíkniefni eða hægt er að misnota við þjálfun, á vefsíðu Lovdata eru upplýsingar um hvaða lyf teljast vera fíkniefni eða efni sem hægt er að misnota við þjálfun.
  • ekki er leyfilegt að fá send dýralyf frá útlöndum

Tollayfirvöld geta farið fram á vottorð, t.d.læknisvottorð, um að lyfin séu til einkanota.

Ef ferðast er til útlanda með lyfseðilsskyld lyf skal viðkomandi vera reiðubúinn til að sýna fram á að hann sé réttmætur eigandi lyfjanna. Hægt er að fá Schengen-vottorð í næsta apóteki.

Sjúklinga- og neytendasamtök

Yfirlit yfir öll sjúklinga- og neytendasamtök í Noregi er á vefsíðu Helse nord.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Norrænn sáttmáli um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu (Agreement)

    Norrænn sáttmáli um félagslega aðstoð og félagslega þjónustu, samþykktur 14. júní 1994.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.