Document Actions

Bankareikningur í Svíþjóð

Lesið hér hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að stofna sænskan bankareikning.

Þú þarft að hafa sænska kennitölu eða samræmingartölu og vera búsett/ur í Svíþjóð til þess að stofna sænskan bankareikning.

Kennitala og samræmingartala fást hjá skattayfirvöldum. Nánar í kaflanum Þjóðskrá í Svíþjóð.

Þá þarftu að framvísa gildum skilríkjum; ESB-vegabréfi, ökuskírteini eða nafnskírteini.

Stundum fer bankinn fram á staðfestingu frá banka þínum í heimalandinu áður en stofnaður er reikningur í þínu nafni í sænska bankanum. Athugaðu þetta nánar hjá bankanum sem þú hyggst stofna reikning í.

Upplýsingar og leiðbeiningar um banka í Svíþjóð má finna á heimasíðu Konsumentbankbyran.se

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.