Document Actions

Flutningur frá Svíþjóð

Einstaklingar sem flytja frá Svíþjóð og dvelja erlendis í lengri tíma geta ekki verið á þjóðskrá í landinu. Nánar um reglurnar hér.

Ef flutt er til útlanda og dvalið lengur en eitt ár er ekki hægt að vera á þjóðskrá í Svíþjóð. Þeir sem flytja verða að tilkynna það til Skattstofu og verða einnig að tilkynna flutning til þess lands sem flutt er til.

Tilkynna skal flutning minnst viku áður en flutt er. Pantið eyðublað SKV 7665 hjá Skattstofunni, þjónustusími Skattstofunnar er: 020-567 000 og hjá upplýsingamiðstöð um skatta (Skatteupplysningen): 0771-567 567.

Hægt er að fá eyðublaðið á sænsku og ensku. Hafi í fyrstu verið gert ráð fyrir stuttri fjarveru, en dvölin síðan lengd, skal tilkynna flutninga erlendis um leið og ákveðið hefur verið að dvelja erlendis a.m.k. eitt ár.

Þegar flutt er á milli norrænna ríkja

Ef flutt er til annars norræns ríkis gilda reglur þess lands sem flutt er til, um hvort viðkomandi getur skráð sig sem innflytjanda.

Einnig í þessum tilfellum skalt tilkynna flutning á skattstofu í síðasta lagi viku fyrir brottför. Ekki er hægt að skrá sig af þjóðskrá fyrr en norræna ríkið sem flutt er til hefur tekið ákvörun um að viðkomandi verði skráður þar.

Annað sem huga þarf að

Tilkynnið breytingu á heimilisfangi til Adressandring.

Afnotagjöld sjónvarps

Þeir sem flytja verða að hafa samband við Radiotjanst í Kiruuna og tilkynna skriflega um sjónvarpseign. Ekki er nægilegt að tilkynna flutning til Skattstofu.

Rafmagn

Viðkomandi þarf að segja upp áskrift að rafmagni hjá þeim aðila sem selur rafmagn svo ekki þurfi að greiða fyrir rafmagnsnotkun annarra.

Aðrar áskriftir

Mikilvægt er að segja upp annarri áskrift svo sem að síma, breiðbandi, dagblöðum o.fl.

Bifreiðagjöld

Bifreiðaskrá sendir ekki greiðsluseðla vegna ógreiddra bifreiðagjalda til útlanda. Því þarf að láta bifreiðaskrá í té sænskt póstfang þegar flutt er erlendis.

Í bifreiðaskrá skal skrá það heimilisfang sem skráð er í þjóðskrá eða annað heimilisfang í Svíþjóð ef eigandi er ekki skráður í þjóðskrá. Ef viðkomandi er ekki með heimilisfang í Svíþjóð verður krafan send sýslumanni til innheimtu. Í þeim tilfellum þarf að greiða álag að upphæð 500 sænskar krónur.

Að halda kosningarétti

Sænskir ríkisborgarar sem orðnir eru 18 ára á kosningadegi fara sjálfkrafa á kjörskrá. Sænskir þegnar eru á kjörskrá í tíu ár frá brottflutningsdegi.

Nýtt tíu ára tímabil hefst ef tilkynnt er að viðkomandi verði áfram erlendis eða ef tilkynnt er um nýtt heimilisfang erlendis.

Ef flutt er á nýjan stað meðan dvalið er erlendis er hægt að tilkynna flutninginn til Skattstofunnar á eyðublaði SKV 7742. (Skattstofan).

Ríkisborgararéttur

Sænskir þegnar missa ekki ríkisborgararéttinn þó þeir flytji til útlanda og séu ekki á þjóðskrá í Svíþjóð.

Annað

Mikilvægt er að hafa samband við banka og tryggingafélag áður en flutt er. Það er einnig góð regla að fá vottorð og skjöl frá skólum barna og öðrum menntastofnunum, fæðingarvottorð, upplýsingar um bólusetningu o.fl.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.