Document Actions

Barnabætur í Svíþjóð

Barnabætur eru skattfrjálsar og greiddar út mánaðarlega. Nánari upplýsingar um bæturnar.

Barnabætur eru greiddar með öllum börnum frá og með þeim mánuði sem barnið fæðist eða eftir þann mánuð sem rétturinn kemst á, til dæmis þegar flutt er til Svíþjóðar. Foreldrar þurfa ekki að sækja um barnabætur. Barnabætur eru skattfrjálsar.

Hafi foreldrar sameiginlegt forræði yfir barninu geta þeir valið hvort foreldrið fær bæturnar. Ef ekki er valið, eru barnabætur greiddar til móður eða ef foreldrar eru af sama kyni, til þess foreldris sem eldra er.

Ef foreldrar búa ekki saman, en skiptast á að hafa barnið hjá sér, geta foreldrar valið að deila barnabótunum á milli sín. Eigi foreldrar fleiri en eitt barn, hækka bæturnar. Nánari upplýsingar á vefsíðunni Försäkringskassan

Barnabætur þegar flutt er frá Svíþjóð

Fjölskylda þín hefur rétt á barnabótum frá Svíþjóð ef annað foreldrið vinnur í öðru ESB-ríki en hitt býr enn með barninu í Svíþjóð og starfar þar.

Ef foreldrið sem enn býr í Svíþjóð er ekki í vinnu, á fjölskyldan fyrst og fremst rétt á barnabótum eða samsvarandi fjölskyldubótum í því landi þar sem hitt foreldrið starfar.

Tengt efni
  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.

  • Barnbidrag för pendlare (Video)

    Børne- og ungeydelsen är Danmarks motsvarighet till det svenska barnbidraget. Detta kan de föräldrar som arbetar i Danmark men bor i Sverige ha rätt till. Mer information finns i denna film.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.