Document Actions

Foreldaraorlof og bætur í Svíþjóð

Hvaða bótum átt þú rétt á þegar þú átt von á barni eða ert heima með barn? Nánari upplýsingar:

Um bætur vegna foreldraorlofs

Sem norrænn ríkisborgari átt þú rétt á eftirfarandi bótum ef þú ert með dvalarleyfi eða dvalarrétt: Ekki er þó leyfilegt að vera í starfi í öðru ESB ríki.

Til þess að fá sjúkradagpeninga (SGI) sem miðast við tekjur frá öðru norrænu ríki verður viðkomandi að vera búsettur í Svíþjóð og eiga aðild að atvinnuleysistryggingasjóði (A-kassa). Starfi einstaklingur í Svíþjóð miðast SGI bætur við tekjur hans þar, jafnvel þó þær séu lægri en þær voru í því ríki sem hann starfaði áður í.

Eigir þú von á barni

Viljir þú taka leyfi áður en fæðing er áætluð, getur þú til að mynda tekið út sumarfrí sem þú átt inni eða annað áunnið leyfi. Þú átt rétt á leyfi frá starfi sjö vikum fyrir áætlaðan barnsburð.

Mæðravottorð

Þungaðar konur fá mæðravottorð þegar þær koma í mæðraskoðun. Vottorðið skal senda til Tryggingastofnunar (Försäkringskassans inläsningscentral). Vottorðið gildir sem tilkynning um greiðslu til foreldra.

Þegar þetta hefur verið gert hefur Trygginastofnun Försäkringskassan samband og gefur nánari upplýsingar. Við ættleiðingu barns eða þegar mæðravottorð er ekki sent inn af öðrum orsökum, verða foreldrar sjálfir að senda tilkynningu um greiðslu til foreldra.

Greiðsla til foreldra á meðgöngu

Greiðsla til foreldra er samtals í 480 daga. Hafi foreldrar sameiginlegt forræði eiga þeir hvor um sig rétt á helmingi daganna. Þunguð kona á rétt á því að hefja töku greiðslu til foreldra frá og með 60 dögum fyrir áætlaða fæðingu.

Greiðslu til foreldra má taka út fyrir heilan, þrjá fjórðu hluta, helming, einn fjórða eða einn áttunda úr degi. Þetta þýðir að hægt er að stytta vinnutíma eða vera í leyfi frá og með 60 dögum fyrir áætlaða fæðingu.

Til þess að fá greiðslu til foreldra fyrir fæðingu er nauðsynlegt að senda inn mæðravottorð.

Sjúkradagpeningar á meðgöngu

Ef þú getur ekki unnið á meðgöngutímanum vegna veikinda átt þú rétt á sjúkradagpeningum, sama hve langt er í áætlaða fæðingu. Tryggingastofnun sker úr um hvort einstaklingur á rétt á sjúkradagpeningum.

Greiðslur á meðgöngu

Sé starf þitt líkamlega erfitt og hafi meðgangan í för með sér skerta starfsgetu, getur verið að þú eigir rétt á greiðslu á meðgöngu. Þetta á einnig við ef starf þitt getur haft í för með sér áhættu fyrir barnið.

Þú átt einungis rétt á greiðslum á meðgöngu, ef vinnuveitandi þinn getur ekki flutt þig í léttara eða áhættuminna starf á meðan á meðgöngu stendur. Það er vinnuveitandinn sem tekur ákvörðun um hvort viðkomandi getur starfað áfram eða ekki.

Eftir fæðingu

Við fæðingu barns sendir ljósmóðirin fæðingartilkynningu til skattayfirvalda. Barnið er skráð í þjóðskrá hjá Skattstjóra og fær kennitölu.

Þaðan eru upplýsingar sendar til Tryggingastofnunar. Samkvæmt fæðingarorlofslögum geta nýbakaðir foreldrar tekið sér frí frá vinnu og fengið fæðingarorlofsgreiðslur.

Þegar giftir gagnkynhneigðir einstaklingar eignast barn er eiginmaðurinn sjálfkrafa skráður sem faðir barnsins. Ef einstaklingar eru ekki giftir þegar barnið fæðist, verður faðirinn að tilkynna faðernið skriflega. Félagsmálanefnd sveitarfélagsins verður að staðfesta faðernið.

Þegar tvær samkynhneigðar konur eignast barn saman með aðstoð gervifrjóvgunar á sjúkrahúsi í Svíþjóð, staðfestir sjúkrahúsið að báðar konur séu foreldrar barnsins.

Einstaklingur sem er eða hefur verið skráður sambýlismaður/-kona eða verið giftur foreldri, hefur sömu stöðu og foreldri. Sambýlismaður/-kona sem á eða hefur eignast barn með foreldrinu hefur einnig sömu stöðu og foreldri.

Orlof og bætur vegna barnsburðar

Nýbakaðir feður eða annað foreldri barns eiga rétt á tíu auka orlofsdögum með bótum sem kallaðar eru tímabundnar fæðingarorlofsgreiðslur (tillfällig föräldrapenning).

Þegar um fleirburafæðingu er að ræða er tímabundið fæðingarorlof greitt í 10 daga fyrir hvert barn. Orlofið er hægt að taka út þangað til 60 dagar eru liðnir frá því að komið var með barnið heim af sjúkrahúsi, samtímis því að móðirin fær fæðingarorlofsgreiðslur Þér er ekki heimilt að vinna á sama tíma og þú færð greiðslurnar.

Við vissar kringumstæður getur annar einstaklingur sem tekur sér leyfi frá vinnu vegna fæðingarinnar fengið bæturnar. Bæturnar eru tekjutengdar.

Ef þú óskar eftir því að fá fæðingarorlofsgreiðslur á meðan þú dvelst erlendis þarftu að sækja um það sérstaklega hjá Tryggingastofnun. (Försäkringskassan).

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Samtök)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Samtök)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Samtök)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.