Document Actions

Meðganga og fæðing í Svíþjóð

Upplýsingar fyrir konur sem ganga með og fæða börn í Svíþjóð.

Jordmor
Ljósmyndari
Karen Beate Nøsterud - norden.org

Ef þú átt von á barni

Í Svíþjóð eiga allir rétt á ókeypis mæðravernd. Ef þú átt von á barni á þú rétt á ókeypis mæðraeftirliti alla meðgönguna og þú ræður sjálf hvort þú þiggur eftirlitið. Fyrsta heimsókn er venjulega í áttundu til tólftu viku meðgöngu. Þú velur sjálf þann mæðraeftirlitsstað sem þú vilt nýta þér, og getur einnig skipt um eftirlitsstað á meðan á meðgöngu stendur.

Fæðing

Þú getur sjálf ákveðið á hvaða fæðingadeild þú fæðir barnið, en það kemur fyrir að mæðrum er vísað annað, sé deildin full. Sum sveitarfélög bjóða einnig fjárhagslegan stuðning til þeirra sem ákveða að fæða heima, að uppfylltum vissum skilyrðum. Til að fá nánari upplýsingar um heimafæðingar hafðu samband við sveitarfélagið Landstinget þar sem þú ætlar að fæða barnið.

Tengt efni
  • Landamæraþjónustan (Organisation)

    Landamæraþjónustan er samstarf stjórnvalda í Svíþjóð og Noregi um landamæramál. Meginverkefni landamæraþjónustunnar er að svara spurningum einstaklinga og fyrirtækja sem stunda starfsemi af einhverju tagi yfir landamæri þjóðanna.

  • Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd (Organisation)

    Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.

  • Öresund Direkt (Organisation)

    Öresund direkt er upplýsingaþjónusta, sem miðlar opinberum upplýsingum til almennings og atvinnulífs á Eyrarsundssvæðinu.


 

Viltu spyrja Halló Norðurlönd?

Spurningar um flutning, vinnu og nám á Norðurlöndunum má senda með því að fylla út rafrænt eyðublað. Spurningum er svarað af starfsfólki upplýsingaþjónustunnar Halló Norðurlönd.